Fréttablaðið - 20.06.2009, Side 34
4 FERÐALÖG
É
g var stödd í Delí til
þess að sækja hönnunar-
ráðstefnu með vinkonu
minni þegar allt ætl-
aði vitlaust að verða einn dag-
inn þarna úti. Þá kom í ljós að
ein stærstu hátíðarhöld Indverja
áttu sér stað þennan dag, en þau
eru kölluð Holi eða hátíð litanna.“
Hindúar halda þennan dag hátíð-
legan á vori hverju en hann táknar
sigur hins góða á hinu illa. „Aðal-
atriðið virðist vera að kasta lituðu
vatni og litadufti hver á annan og
því verður þetta mjög skrautlegt.
Við ákváðum að taka „rikshaw“ um
götur borgarinnar og þeystumst
þar um í mannmergðinni. Maður-
inn sem dró okkur vildi ekki einu
sinni fara með okkur inn í sumar
göturnar því að hann sagði að það
yrði of hættulegt enda fólk oft vel
æst og hífað á hátíðarhöldunum.“
Hindúar kveikja líka elda á Holi
til þess að minnast þess hvern-
ig hinn ungi guð Prahlad komst
undan hinni illu gyðju Holika sem
reyndi að kasta honum á bál. „Ég
er svo afskaplega litaglöð kona að
það þótti mjög fyndið að ég skyldi
óvart hafa álpast á mestu litahátíð
heims,“ segir Áslaug hlæjandi en
þetta var önnur ferð hennar til Ind-
lands. „Um kvöldið fór allt að róast
og fólk að skola af sér litina í gos-
brunnum eða öðru rennandi vatni.
Síðla kvölds uppgötvuðum við, að
líkt og á gamlárskvöld á Íslandi
snæða allar fjölskyldur saman í
heimahúsum á þessum hátíðlega
degi. Það var því hvergi opið fyrir
okkur um kvöldið.“ - amb
HÁTÍÐ LITANNA
Ljósmyndarinn Áslaug Snorradóttir lenti óvart í miðju Holi-hátíðarhaldanna í
Delí, þar sem fólk kastar litum á hvert annað, og fangaði herlegheitin á fi lmu.
VATNSBYSSUR
OG KANNABIS-
HRISTINGUR
HOLI-HÁTÍÐIN er vorhátíð hindúa
sem er haldin hátíðleg á Indlandi,
í Pakistan, Nepal og Bangladess
og fleiri löndum þar sem hindúatrú
er algeng, eins og í Suður-Afríku,
á Fídji-eyjum og Trínidad. Hátíðin
stendur í sextán daga en aðal-
dagurinn nefnist Dulhendi en þá
kastar fólk lituðu og ilmandi dufti í
hvert annað og notar til þess eins
konar vatnsbyssur. Daginn áður,
Holika Dahan, eru eldar kveiktir
um allt. Fólk neytir alls konar
smárétta eins og malpua, mathri
og dahi badas sem eru litlir vafn-
ingar fylltir af grænmeti og kjöti.
Um kvöldið er búinn til eins konar
mjólkurhristingur úr kannabis.
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
56.570 kr.fráVikuferð 25. júní með hálfu fæði
Gran Hotel Bali
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
56.570 kr.fráVikuferð 25. júní með fullu fæði
Gala Placidia Hotel
Spánn
- Síðustu sætin
á frábæru verði!
sumarferdir.is
...eru betri en aðrar