Fréttablaðið - 20.06.2009, Page 35
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég verð eiginlega bara „on the
road“ í dag og á morgun,“ segir rit-
höfundurinn Einar Már Guðmunds-
son, beðinn um að lýsa fyrirætlun-
um sínum um helgina. Og það eru
orð að sönnu því í dag ætlar höf-
undurinn að ferðast norður þar sem
hann ætlar meðal annars að lesa
upp úr verkum sínum á Hjalteyri.
„Ég verð þarna í yfirgefinni
síldar verksmiðju um kvöldið
ásamt tónlistarmönnunum Þór-
arni Hjartar syni og Kristjáni Pétri
Sigurðs syni, sem eru báðir að norð-
an. Við erum hálfpartinn að endur-
taka leikinn frá árinu 1995 þegar
við vorum fyrir norðan með upp-
lestur og tónlist í bland sem þótti
skemmtilegt og minnisstætt að
okkar mati og annarra.“ Ekki er þó
áætlað að endur flytja dagskrána
því Einar Már verður meðal annars
með nýja bók í farteskinu. „Þetta
er í raun bók um hamfarir sam-
tímans. Hún kallast Hvíta bókin,“
segir hann leyndardómsfullur og
fæst alls ekki til að fjalla nánar um
innihaldið að sinni.
Með í för verða einnig fram-
leiðandi og tökumaður þar sem til
stendur að taka upp efni fyrir nýja
heimildarmynd sem Einar Már er
að vinna að. „Ég er bara kominn
með enska titilinn á hana, það er
How to Win a Lost Game. Myndin
fjallar um fótboltafélag alkóhól-
ista, sem keppti í utandeildinni í
fyrra,“ útskýrir hann, en segist þó
ekki vera sjálfur í liðinu. „Það sam-
anstendur af mönnum á öllum aldri
og úr öllum áttum, sem hafa tekið
þátt í félagsstarfi SÁÁ. Ég tók ítar-
leg viðtöl við þrjá þeirra, sem eru
algjört „masterpiece“. Einn býr
þarna fyrir norðan og þar sem ég
er að myndskreyta viðtölin ákvað
ég að nota tækifærið og taka upp
þar.“
Einar Már hefur unnið að gerð
myndarinnar síðan í nóvember á
síðasta ári og segir sér miða vel
áfram með verkið. En hvenær má
búast við að hún komi fyrir sjónir
almennings? „Bara þegar við erum
tilbúnir með hana,“ segir hann
hlæjandi og býst við að hann muni
gista um nóttina fyrir norðan til að
ljúka verkinu.
Á þá ekkert að slaka á um helg-
ina? „Nei, ekki reikna ég með því,“
svarar hann yfirvegaður og segir
annars engar sérstakar reglur gilda
um helgarnar hjá sér. Þær helgist
einfaldlega af þeim verkefnum sem
hann vinnur að hverju sinni.
roald@frettabladid.is
Á þönum alla helgina
Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson ætlar að leggjast í vegaferð um helgina. Upplestur úr nýrri bók
og tökur á heimildarmynd um fótboltafélag alkóhólista eru á meðal þess sem er á dagskrá.
Einar hlakkar til kvöldsins. „Ég hef komið á Hjalteyri áður. Þetta er mjög fallegt svæði og sérstakt andrúmsloft í þessum gömlu
verksmiðjum þar sem mikil starfsemi var í eina tíð en eru nú yfirgefnar. Svo eru menn núna að lífga þær við með menningar-
starfsemi.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SUMARHÁTÍÐ SKERFIRÐINGA hefst í dag
klukkan 10. Meðal viðburða má nefna leikfimi, jóga,
sögugöngu um hverfið undir leiðsögn Þórs Magnús-
sonar, sjóböð, ýmsa skemmtun, pylsur og ís fyrir
yngstu kynslóðina og grill og söng fram eftir kvöldi.
Nánar á www.skerjafjordur.is.
ÚTSALA
DÚNDUR ÚTSALA!
Opið mán. - fös. frá kl. 11:00 - 18:00
Laugardaga frá kl. 11:00 – 16:00
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Allar stuttbuxur
& sundföt á
50% afslætti.
Viðey 50% afsláttur
d 20 21 jú íagana . og . n
50 ára afmælismót skáta (Landnema)
verður í Viðey um helgina og verður því
50% afsláttur í ferjuna alla helgina.
Viðeyjarstofa verður opin frá
kl. 11:30 til kl. 17:00 með tilboð
á veitingum.
Nánari upplýsingar í síma:
555 3565 og á ww.elding.is
Siglingar á klst. fresti frá Skarfabakka.
Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið | Sími 533 2220 | www.lindesign.is
www.lindesign.is/lagersala