Fréttablaðið - 20.06.2009, Page 51
LAUGARDAGUR 20. júní 2009 31
svæði. Gestir Skemmtigarðsins
hafa því aðgang að klifurturni,
strandblaki og gömlu hlöðunni
sem hefur verið gerð upp og er
meðal annars notuð sem veitinga-
aðstaða.
„Það nýjasta hjá okkur er að
bjóða upp á fjölskyldudag fyrir-
tækja hjá okkur. Þetta er tilval-
inn staður fyrir það, því hér er
afþreying fyrir alla aldurshópa,
meira að segja unglingana sem oft
er svo erfitt að draga með á slíkar
samkomu.”
Áhuginn á garðinum hefur farið
langt fram úr væntingum þeirra
Ingu og Eyþórs og það er æ algeng-
ara að fólk vilji mæta á svæðið án
þess að gera boð á undan sér. Það
hefur ekki verið hægt hingað til,
nema á föstudögum og laugardög-
um þegar fólk fær að ganga inn í
aðra hópa sem eru á staðnum. Við
ætlum að sjálfsögðu að bregðast
við þessu og erum nú með í undir-
búningi að auka á afþreyinguna
fyrir fjölskyldur og einstaklinga,”
segir Inga.
Töfrar hópeflisins
Eyþór og Inga hafa verið í afþrey-
ingarbransanum lengi og vita því
sitthvað um hvernig á að skemmta
fólki og hrista það saman. „Við
erum búin að eiga litboltafyrir-
tæki í níu ár, fyrst í Kópavoginum
og síðar í Hafnarfirði á meðan
beðið var eftir Gufunesinu.“ Þau
eru með tuttugu manna hóp starfs-
fólks að baki sér og hefur margt
þeirra unnið með þeim lengi. „Það
er okkar lukka að hafa frábært
fólk á bak við okkur. Þegar hópar
koma til okkar taka á móti þeim
hópeflismeistarar en hver þeirra
er sérhæfður í ákveðinni afþrey-
ingu. Við erum til dæmis með
björgunarsveitagæja í klifrinu og
sá sem kennir frisbígolfið keppir
í sportinu. Við viljum að fólk fái
bestu mögulegu leiðbeiningarnar
svo það geti notið þess sem það er
að gera.”
Þau eru sannfærð um að hóp-
efli sé besta leiðin til að hrista fólk
saman. „Við fáum fullt af fólki til
okkar sem nennir ekki að taka þátt
í hópefli. „Þetta er ekki ég“ segir
það og harðneitar að taka þátt. En
ég verð alveg ótrúlega svekkt ef
ég næ ekki að sannfæra það um að
vera með, því þetta er fólkið sem
fær mest út úr hópeflinu. Þegar
fólk hendir sér út í djúpu laugina
verður það svo stolt af sjálfu sér
og það færir því svo mikla gleði.
Þess vegna höfum við svo mikla
trú á hópefli; því við vitum hvað
það gefur fólki. Við höfum fengið
til okkar hópa úr fyrirtækjum sem
hafa gengið í gegnum ofboðslega
erfiðleika, til dæmis miklar upp-
sagnir. Fyrirtæki verða að gera
eitthvað fyrir fólkið sem verður
eftir, til að það haldi velli,“ segir
Inga og Eyþór bætir við að það
verði að minna fólk á að með rétta
hugarfarinu geti það allt. „Það er
ein ástæðan fyrir því að við feng-
um Guðmund Guðmundsson lands-
liðsþjálfara til liðs við okkur, en
hann kennir okkur að yfirfæra
hugarfar sigurvegarans yfir á
fyrir tæki og einstaklinga. Það
tekur jafnmikla orku að hugsa
stóra hugsun eins og litla hugsun.
Og það er ekkert erfiðara.”
Sterk heild
Þau Eyþór og Inga þakka hvort
öðru velgengni garðsins og það
er greinilegt að þau telja hvor-
ugt garðinn geta gengið án hins.
Verkaskiptingin á milli þeirra er
skýr. Eyþór sér um þróun heildar-
svæðisins á meðan Inga togar
hann aftur niður á jörðina þegar
hann er kominn fram úr fjárhags-
áætlun. „Inga er akkeri fyrirtækis-
ins. Hún heldur utan um allan dag-
legan rekstur, passar upp á allar
áætlanir eins og konur gera,“
segir Eyþór og brosir. Inga hlær
að hrósi Eyþórs en tekur undir að
hún sé skipulagðari helmingur
sambandsins. „Ég rek þetta bara
eins og heimilisbókhald, þannig er
langbest að gera þetta, ef maður
ætlar að forðast að steypa sér í
skuldir. Verkaskiptingin á milli
okkar er gríðarlega mikilvæg og
grunnurinn að því að samstarfið
gangi á milli okkar. Eyþór er góður
í að skipuleggja, hann er góður í
hönnunar- og markaðs málunum og
hefur þá framtíðarsýn sem þarf til
að við getum haldið áfram að vaxa
og dafna.”
Nýtt í
Skífunni
Laugavegi · Kringlunni
www.skifan.is
NÝ TÓNLIST LEIKIR DVD
2.199
2.6992CD
FULLORÐNIR LEIKA SÉR Margir fullorðnir eru búnir að gleyma því hvað það
er gaman að leika sér. Í Skemmtigarðinum rifjast það upp.
HÓPEFLI Inga og Eyþór segja fyrirtæki oft vanmeta mikilvægi þess að hrista saman starfsmenn.
MYND/EYÞÓR GUÐJÓNSSON
M
YN
D
/E
YÞ
Ó
R
G
U
Ð
JÓ
N
SS
O
N