Fréttablaðið - 20.06.2009, Qupperneq 62
42 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
3
15
Ath. á morgun kl. 16.00
Þá munu Vigdís Klara Aradóttir og
Guido Bäumer leika saxófóndúetta
í stofu nóbelsskáldsins. Á efnis-
skránni er frumflutningur verkanna
Oxydes og Fjórir dúettar eftir Marie-
Héléne Fournier, Adria eftir Christi-
an Lauba og Konzertstück eftir Paul
Hindemith. Stofutónleikar Gljúfra-
steins verða alla sunnudaga í sumar
kl. 16.
> Ekki missa af
Smásveit Reykjavíkur, lítið brot
af Stórsveit Reykjavíkur, kemur
fram á öðrum tónleikum
sumar tónleikaraðar veitinga-
staðarins Jómfrúarinnar við
Lækjargötu í dag Sigurður
Flosason leikur á saxófón,
Kjartan Valdemarsson á píanó,
Gunnar Hrafnsson á kontra-
bassa og Jóhann Hjörleifs-
son á trommur. Flutt verður
fjölbreytt úrval djassstand-
arda. Hugsanlegt er að fleiri
meðlimir Stórsveitarinnar
kíki í heimsókn og taki lagið.
Tónleikarnir hefjast kl. 15 og
standa til kl. 17. Leikið verður
utandyra á Jómfrúartorginu ef
veður leyfir, en annars inni á
Jómfrúnni.
Vorhefti Sögu, tímarits Sögu-
félagsins, er komið út og er
það fyrsta heftið sem Sigrún
Pálsdóttir ritstýrir. Margt efni
er í heftinu sem er 264 síður
að stærð. Fimmtán stjórn-
málamenn svara spurningum
ritstjórans en hún var send
tuttugu og sjö einstaklingum
sem aktífir hafa verið í pólitík.
Spurt var: Hefur tilhugsunin
um sögulega arfleifð þína og
eftirmæli sem stjórnmála-
manns haft áhrif á ákvarðanir
þínar í pólitík?
Langt viðtal er í heftinu
við Jóhann Pál Árnason,
félagsfræðing og heimspek-
ing; Guðmundur Jónsson
birtir greinargerð um kreppur á Íslandi 1870-
2000, Gunnar Karlsson kynnir nýtt hugtak:
tilfinningarétt. Aðalheiður
Guðmundsdóttir skrifar um
siðferði gleðinnar í danskvæð-
um og dansmenningu fyrri
alda. Hjalti Hugason rýnir í átök
um samband ríkis og kirkju í
deilum Guðmundar Arasonar
og Kolbeins Tumasonar. Jón
Ólafsson svarar gagnrýni Þórs
Whitehead á skrif sín um sam-
band Komintern við sósíalista
hér á landi. Þá eru í heftinu
ítarlegir ritdómar og vekur þar
mesta athygli greining Páls
Björnssonar á verki Guðjóns
Friðrikssonar, Sögu af forseta,
auk fleiri merkra ritdóma. Heftið
skreytir á forsíðu hluti málverks
af Lauritz Gottrup og fjölskyldu
sem vegið er í heftinu af Þóru Kristjánsdóttur
og Gunnari Hannessyni.
Tímaritið Saga komið út
Listasumar á Akureyri hefur
verið ómissandi í menningar-
og listasumarsflóru Akur-
eyrarbæjar til fjölda ára og
ávallt sett svip á bæjarlífið.
Fjölbreytt dagskrá Listasumars frá
Jónsmessu að Akureyrarvöku þar
sem boðið er upp á yfir hundrað
viðburði, er mikilvægur og ómiss-
andi þáttur í menningar-/listalífi og
menningartengdri ferðaþjónustu á
svæðinu, bæði fyrir heimamenn og
ferðalanga.
Fastir dagskrárliðir Listasumars
eru sem fyrr Heitir fimmtudagar,
skipulagðir af Jazzklúbbi Akur-
eyrar, Föstudagshádegis tónleikar,
hádegistónleikar skipulagðir af
forsvarsmönnum Listasumars
og Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju alla sunnudagseftirmiðdaga
í júlímánuði, auk fjölda annarra
viðburða á öllum sviðum listalífs-
ins. Auk myndlistarsýninga í Lista-
safninu, Ketilhúsinu og Deiglunni
eru settar upp fjölmargar og fjöl-
breytilegar sýningar í mörgum
galleríum og vinnustofum, kaffi-
húsum og veitingastöðum.
Listalífið á Akureyri er löngu
orðið landsþekkt fyrirbæri. Það
þykir nefnilega einsdæmi að svo
margir myndlistarmenn/gallerí og
sýningarsalir skuli rúmast í eins
fámennum bæ og raun ber vitni.
Engin landamæri eru á Lista-
sumri og auk innlendra listamanna
kemur fjöldinn allur af listamönn-
um hvaðanæva að úr heiminum.
Söfnin á Akureyri og í Eyjafirði
eru hvert um sig með einstakar
sýningar og bjóða upp á ýmsa við-
burði. Listasumar kynnir einstaka
viðburði í sínum veglega bæklingi,
en söfnin í Eyjafirði eiga sinn eigin
sameiginlega bækling sem liggur
frammi á öllum helstu ferðamanna-
stöðum. Aðkomumönnum er bent á
vef Listasumars: www.listasumar.is
til að kynna sér dagskrána.
pbb@frettabladid.is
Sautjánda listasumarið
Ítalski rithöfundurinn
Claudio Magris hlaut fyrir
fáum dögum Frelsisverð-
laun þýskra bóksala en
þau eru með virtari bók-
menntaverðlaunum Evrópu.
Fær hann verðlaunafé sem
nemur 25 þúsund evrum.
Magris kom hingað til lands
fyrir fáum misserum. Hann
er prófessor í bókmenntum
við háskólann í Trieste og
hefur skrifað fjölda rita
þar sem hann skoðar ýmsa þætti
sögu Evrópu á síðustu öld. Þekkt-
asta verk hans er Dóná, sem kom út
fyrir tveimur áratugum, en þar er
í esseyjuformi fylgt Dóná frá upp-
tökum til ósa. Verk hans eru þýdd á
fjölda tungumála og þeirra á meðal
síðasta skáldsaga hans Hin blindu
en þar lýstur saman íslenskri sögu
og meginlandsins. Sagan er byggð
upp sem langt eintal manns að nafni
Salvatore Cippico en hann rekur
ævi sína fyrir lækni á Geð-
sjúkrahúsinu Barcola 1992.
Þar fer fram fleiri sögum
en einni því Salvatore trúir
því að hann sé Jörundur
Hundadagakonungur og
því rekur sagan ferðir Jör-
undar til Ástralíu, Íslands
og Tasmaníu auk þeirra
meginlandslanda Evrópu
sem Jörundur fór um. Inn í
söguna blandast svo minn-
ingar frá Dachau nasista
og Goli Otok, fangabúðir í Júgóslav-
íu Títós fyrir pólitíska andstæðinga
kommúnista. Hinn tvískipti per-
sónuleiki Salvatore sækir til ein-
staklinga sem hafa upplifað fanga-
nýlendur, ferðir um farlæg höf og
lendur og umrótatíma tveggja alda.
Svissar eintalið á milli þeirra, jafn-
vel í miðri setningu. Bókin kom út
í danskri þýðingu 2007 og vakti þá
verulega athygli.
- pbb
Magris verðlaunaður
MANNFAGNAÐUR Bláa kannan setur
mikinn svip á miðbæ Akureyrar en
Listasumarið hófst í gær í höfuðstað
Norðurlands.
BÓKMENNTIR
Claudio Magris
rithöfundur.