Fréttablaðið - 20.06.2009, Page 66
46 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
Haffi Haff treður upp á mikilli feg-
urðarsamkeppni á Möltu og kemur
fram á MTV hátíð þar. Helsta
áhyggjuefnið er að stílistinn mikli á
engin föt til að koma fram í.
„Ég ætla að reyna að gera allt vitlaust,“
segir stílistinn og tónlistarmaðurinn Haffi
Haff. Það stendur mikið til hjá Haffa en 4.
júlí næstkomandi treður hann upp á mikilli
fegurðarsamkeppni sem haldin er á Möltu
– Miss World Jersey sem er eins konar for-
keppni Miss World en bresku eyjarnar eru
með sérstaka keppni í tengslum við það.
Þá verður á sama tíma mikið MTV-partí á
Möltu og er ætlunin að Haffi komi þar fram
einnig.
„Það er ógeðslega gaman að fara út og
gera eitthvað. Ég hef verið á fullu við að
skemmta hér heima, eins mikið og ég get, en
það er gaman að fara út. Maður sigrar ekki
heiminn með því að vera alltaf á sama stað.
Og það er tilgangurinn: Að sigra heiminn,“
segir Haffi Haff hress í bragði. Hann ætlar
að flytja lagið „Control“ sem hann sendi frá
sér fyrir viku. Einnig Wiggle Wiggle Song
sem Íslendingar þekkja vel frá því hann
söng það í forkeppni fyrir Eurovision-keppn-
ina fyrir tveimur árum. Og ekki síst lagið
Give Me Sexy sem er mjög vinsælt á Möltu.
Ástæðan fyrir því að Haffi er þekkt stærð
á Möltu er meðal annars þannig sú að texta-
höfundur þess lags, Gerard James Borg, er
einmitt búsettur á Möltu. Gerard er virt-
ur í bransanum og hefur í nokkur skipti átt
framlag Möltu í Eurovision-söngkeppnina
auk þess að hafa starfað með stórstjörnum
á borð við Missy Eliot, Alicia Keys, Sacha
og Carola.
„Hann er ótrúlega góður gæi en við höfum
verið að vinna með honum að undanförnu.
Ég ætla að reyna að fá Írisi Hólm sem syng-
ur með mér í Control út. Annars veit ég ekki
hverjir verða með í för. En þetta er stórkost-
legt tækifæri og ég ætla að reyna að gera
þetta eins vel og hægt er. Og vera fulltrúi
Íslands. Sýna að hér á Íslandi er verið að
gera góða hluti. Gera lög sem eiga erindi á
alþjóðavettvang. Það er mikilvægast,“ segir
Haffi og slær nú fram nokkru sem hlýtur
að koma mörgum á óvart. „Annars verður
þetta í góðu lagi. Einu áhyggjur mínar eru
þær í hverju ég á að vera. Ég á ekkert til að
vera í.“ Haffi Haff er einhver þekktasti stíl-
isti landsins en hann segir að það sé svo að
þó hann sé að stílisera nánast alla þá mæti
hann sjálfur afgangi. „Ég á alltaf í vand-
ræðum með það. Þetta er mesta stressið.“
Ekki er hægt að skilja við Haffa án þess að
inna hann eftir ástamálunum en fjölmiðl-
ar fjölluðu um ástalíf hans fyrir um hálfu
ári. Haffi hlær spurður hvernig þau mál
standi nú. „Það er enginn í mínu lífi núna.
Það ræður enginn við mig. Það er allt í lagi.
En það þarf alvöru mann til að geta höndlað
mig. Og þeir eru ekki á hverju strái. Ég er
einn og það er fínt.“
jakob@frettabladid.is
folk@frettabladid.is
Hljómsveitin Á móti sól
hefur sent frá sér nýtt lag
sem nefnist Ef þú ert ein.
Lagið, sem er eftir hljóm-
borðsleikarann Heimi
Eyvindarson, er hið fimmta
sem sveitin sendir frá sér
af væntanlegri plötu sinni.
Áætlað er að hún komi út í
nóvember. Hægt er að hlusta
á lagið á bloggsíðu sveit-
arinnar, amotisol.blog.is.
Hljómsveitin spilar næst á
Glóðinni í Keflavík í kvöld
og verður þar væntanlega
hörkustemning.
Stutt er síðan útgáfa Á
móti sól og Buffsins á laginu
Gefðu mér grásleppu fór í
útvarpsspilun. Var það tekið
upp á rútu á leiðinni norður í
landi í Hvítasunnuhelgina.
Á móti sól
með nýtt lag
Á MÓTI SÓL Hljómsveitin Á móti
sól hefur sent frá sér lagið Ef þú
ert ein.
Félagarnir Helgi Jean Claess-
en og Hjálmar Jóhannsson hafa
sett grínmyndband inn á síðuna
Youtube þar sem þeir rappa á
útlensku fyrir Íslands hönd.
Lagið nefnist Ice Ice Iceland:
You Can´t Mess With Iceland og
umfjöllunarefnið er kreppan á
Íslandi og ýmsar ranghugmynd-
ir tengdar henni erlendis.
„Það er búin að vera öll þessi
umræða í gangi um Ísland
á erlendri grundu um að við
séum versta land í heimi,“ segir
Helgi. „Við vorum búin að vera
á toppnum en síðan vorum við
bara orðin heimsþekktir fátæk-
lingar. Við höfum verið máluð
svo svörtum litum þannig að
við vildum senda skilaboð út til
þjóðanna í sjálfhæðnu flippi.“
Á meðal þeirra sem koma við
sögu í laginu eru Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra,
Björk og handboltalandsliðið.
„Við erum aðeins að bíta frá
okkur. Fólk hélt að við myndum
þurfa að búa í snjóhúsum og að
við værum verst setta þjóðin,
orðin að hálfgerðu þriðja heims
ríki,“ segir hann.
Alls hafa um átta þúsund
manns séð síðasta myndband
Helga og Hjálmars þar sem þeir
gerðu grín að frægum Kompás-
þætti um handrukkara. Von-
ast þeir til að aðsóknin að nýja
myndbandinu verði ekki síðri,
enda sjálft stolt þjóðarinnar í
húfi. - fb
Sjálfhæðið flipp um Ísland
HELGI OG HJÁLMAR Helgi Jean Claessen og Hjálmar Jóhannsson
hafa sett grínmyndband inn á Youtube. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HAFFI HAFF TRYLLIR LÝÐINN Á
FEGURÐARSAMKEPPNI MÖLTU
HAFFI HAFF Ætlar sér að sigra heiminn og það gerir hann ekki
með því að vera alltaf heima á Íslandi.
Robin Pecknold, söngvari hljóm-
sveitarinnar Fleet Foxes, telur
að ólöglegt niðurhal á tónlist hafi
haft góð áhrif á tónlistarheiminn.
Hann segir að nú á dögum sé auð-
veldara fyrir tónlistarmenn, þar
á meðal hann sjálfan, að upp-
götva gamla tónlist sem geti haft
áhrif á þá. „Eftir því sem tón-
listarmenn hlusta á meiri tónlist,
því betri verður tónlistin sem
listform,“ sagði hann. „Það er
fullt af frábærum hljómsveitum
starfandi núna sem eru að semja
mun betri tónlist en fyrir tíma
Napster.“ Fleet Foxes átti eina
af plötum ársins í fyrra að mati
gagnrýnenda.
Niðurhal af
hinu góða
> HRÆÐIST MEÐFERÐIR
Bandaríska nýstirnið Megan Fox
hræðist veislur og partí í Hollywood.
Fox, sem sló í gegn í kvikmyndinni
Transformers, er þó ekki smeyk
við slíkar veislur vegna ágangs
karlkyns aðdáenda heldur óttast
hún ekkert meir en að þurfa að
fara í áfengismeðferð.
ROBIN PECKNOLD Telur ólöglegt niður-
hal á tónlist bara gott fyrir tónlistar-
heiminn.