Fréttablaðið - 20.06.2009, Síða 78
58 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
„Ég er að ganga frá á tökustað og
við erum bara að færa okkur yfir
á þann næsta. Sem er Jökulsárlón,“
segir Grétar Örvarsson, tónlistar-
maður með meiru, en hann er farar-
stjóri Kollywood-tökuliðsins sem
Fréttablaðið greindi frá að væri
á leiðinni til landsins. Fyrirtækið
Jöklar ehf. tók tökuliðið upp á sína
arma og fékk Grétar til að vera
sér innan handar. Verkefnisstjóri
Jökla ehf., Elísabet Agnarsdóttir,
upplýsir að indverski sendiherrann
á Íslandi hafi lagt hart að fyrir-
tækinu að taka kvikmyndagerðar-
fólkið frá Indlandi uppá sína arma
en Jöklar ehf. og sendiráðið eru á
sama fermetranum á Skúlagötu.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
eru þetta engar smástjörnur á ind-
verskan mælikvarða sem staddar
eru hér á landi. Leikstjórinn heitir
Ravikumar og er feykilega virtur
í sínu heimalandi, aðalleikararnir
tveir eru þau Surya og Nayanthara,
sannkallaðar stórstjörnur heima
fyrir. Tökuliðið hefur farið ansi
víða á þeim stutta tíma sem það
hefur dvalist hér á landi; Reykja-
vík, Hengilssvæðið, Seljalands-
foss, Hjörleifshöfði og Bláa lónið,
svo fátt eitt sé nefnt.
Elísabet segir þetta vera mikla
vinnuþjarka, tökur hefjist klukk-
an fimm á morgnana og unnið sé
nánast sleitulaust til klukkan tíu og
ellefu á kvöldin. Verið sé að taka
upp tónlistaratriði sem eru nánast
skylda í kvikmyndum frá þessum
heimshluta. „Þeir setja ekki miklar
kröfur, engin lúxushótel eða sér-
svítur. Þeir sætta sig meira að
segja við að deila herbergi þótt ein-
hverjir séu milljarðamæringar og
aðrir ekki. Og fannst til að mynda
bara notalegt að vera á bænda-
gistingunni í Vík,“ segir Elísa-
bet. Hún bætir því við að fjórir til
fimm indverskir kvikmyndagerðar-
menn séu áhugasamir um að koma
hingað til Íslands í haust til að
taka upp atriði fyrir kvikmyndir
sínar og slíkt gæti reynst gulls
ígildi. „Þetta gæti haft mikil áhrif
á ferðamannastrauminn frá Ind-
landi, menn hafa fundið fyrir aukn-
um áhuga frá Indlandi í Sviss eftir
að indverskir kvikmyndagerðar-
menn tóku upp nokkur atriði þar,“
segir Elísabet. Tökuliðið heldur af
landi brott á sunnudaginn.
freyrgigja@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. Listastefna, 6. tvíhljóði, 8. tækifæri,
9. smáskilaboð, 11. ónefndur, 12.
vegna, 14. nirfill, 16. í röð, 17. struns,
18. í viðbót, 20. gjaldmiðill, 21. tútta.
LÓÐRÉTT
1. sitjandi, 3. skammstöfun, 4. land
í Evrópu, 5. tálbeita, 7. umhirða, 10.
skjön, 13. dvelja, 15. listi, 16. skraf,
19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dada, 6. au, 8. lag, 9. sms,
11. nn, 12. sökum, 14. nánös, 16. mn,
17. ark, 18. auk, 20. kr, 21. snuð.
LÓÐRÉTT: 1. rass, 3. al, 4. danmörk,
5. agn, 7. umönnun, 10. ská, 13. una,
15. skrá, 16. mas, 19. ku.
Frétt Daily Mail, sem íslenskir
fjölmiðlar endursögðu samvisku-
samlega, af Lornu Bliss, breskri
konu á þrítugsaldri sem hefur
varið þrjátíu milljónum króna í
að líkjast Britney Spears, vakti
athygli í vikunni.
Það má vera til marks um
hversu heimurinn er lítill að Lorna
þessi er sannkallaður Íslandsvin-
ur og dvaldi hér á landi um hríð
og starfaði þá sem súludansmey
á Gold finger. „Hún var að dansa
hjá okkur í tvö ár og bjó þá hér á
Íslandi. Fjögur ár síðan hún var
hérna,“ segir Ásgeir Þór Davíðs-
son eða Geiri á Goldfinger. Hann
lýsir Lornu Bliss sem mjög minnis-
stæðri, skemmtilegri og líflegri
stúlku. „Já, við urðum varir við
að hún var með Britney-áráttu.
Alveg „húkkt“ á því. Mér fannst
hún nú ekkert lík Britney
þá en þrjátíu milljónum
seinna ... þá hafa kannski
orðið einhverjar breyting-
ar,“ hlær Geiri.
Súlukóngurinn vill þó ekki
meina að Lorna Bliss sé sú
frægasta sem hefur starfað sem
strípidansmey hjá honum. „Nei,
ég get nú alveg sagt þér það að ég
hef verið með margar frægar.
Hún Lorna hefur samt leikið í
fullt af bláum myndum og gekk
þá undir nafninu Lacey Mag-
uire,“ segir Geiri sem hefur mikl-
um mun nákvæmari heimildir
um fortíð þessarar þekktu konu
en Daily Mail sem hélt því fram
að hún hefði einkum starfað sem
eftirherma Britneyar og troðið
upp sem slík í afmælisveislum
og næturklúbbum. - jbg
Britney-eftirherman
á sér íslenska fortíð
„Það er allt að gerast. Nokkrar flott-
ustu konur landsins ætla að mæta. Það
er bullandi áhugi fyrir þessu,“ segir
Davíð Rúnarsson, knattspyrnu- og póker-
maður.
Í gær – kvenréttindadaginn – þegar
Fréttablaðið heyrði í Davíð var hann í
óðaönn að undirbúa sérstakt kvenna-
pókermót sem á að fara fram klukk-
an tvö í dag á Gullöldinni í Grafarvogi.
„Þarna verða þekktustu fótboltastjörn-
ur landsins, söngkonur og tískudrottn-
ingar: DJ Sóley, Svava Johansen kennd
við 17, Alexandra Helga Ívarsdóttir, sem
var Ungfrú Ísland í fyrra, og nokkrar
sem tóku þátt í Ungfrú Ísland í ár,“
segir Davíð. Mótið er lokað karlmönnum
sem þó mega koma og horfa á. Ekki er
algengt að konur taki þátt í pókermótum.
Að sögn Davíðs eru kannski um tíu sem
leggja stund á póker hér á landi. „Venju-
lega er þetta þannig að konur gefa spilin
og við spilum. En nú ætlum við að fá ein-
hverja heita „hönka“ til að gefa og þær
spila til tilbreytingar.“ Í gær var kven-
réttindadagurinn haldinn hátíðlegur en
í dag fer Kvennahlaupið fram og Davíð
telur upplagt að þær hlaupi, komi svo til
að fá sér einn kaldan og spila póker.
Davíð, sem spilar fótbolta með úrvals-
deildarliði Þróttar, skipuleggur póker-
mót í frístundum. Og á Glóðinni í Kefla-
vík er verið að koma upp pókerbækistöð
sem Davíð aðstoðar við að koma á kopp-
inn. Ætlunin er að vera með föst póker-
mót öll fimmtu- og föstudagskvöld. Í
gærkvöldi mættu handboltakempurnar
Logi Geirsson, Aron Pálmarsson og Sig-
fús Sigurðsson til að keppa sín á milli og
við aðra í póker. - jbg
Kvennapókermót á Gullöldinni í dag
SVAVA Í 17 ÓRÆÐ VIÐ PÓKERBORÐIÐ Svava er ein þeirra sem skráðar eru
til leiks í miklu kvennapókermóti sem haldið verður í dag.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1. Svandís Svavarsdóttir.
2. Smáfuglar.
3. Sigfús Sigurðsson.
ÍSLANDSVINURINN LORNA
BLISS Geira á Goldfinger
þótti hún ekkert sérstak-
lega lík Britney þá er hún
starfaði hjá honum en
man vel eftir Britney-
áráttu dansmeyjarinnar.
Meistari ljósvakans, Ingvi
Hrafn Jónsson sjónvarps-
stjóri ÍNN, fer mikinn
þessa dagana í þætti
sínum Hrafnaþing.
Hann er með kvíða-
hnút í maganum
vegna Icesave-sam-
komulagsins og segir Evrópusinna
þykjast eiga landið með Jón Baldvin
Hannibalsson í fararbroddi, „gamla
fretkarlinn“ eins og Ingvi Hrafn Jóns-
son orðar það. Líklega má það heita
andóf af hans hálfu að hafa ráðið
sinn gamla kollega af Mogganum,
Björn Bjarnason, til þáttagerðar
við ÍNN.
Dr. Gunni birtir á vinsælli síðu sinni
á Netinu athyglisverðan samanburð:
Nýjan lista yfir bestu plötur Íslands-
sögunnar sem kjörnar voru á Tónlist.
is og svo sambærilegan lista sinn
yfir bestu plötur aldarinnar eins og
hann var í bók Dr. Gunna „Eru ekki
allir í stuði?“ árið 2001. Þetta eru
merkilega líkir listar nema að mest-
allt pönkið sem hinn afkastamikli
tónlistargagnrýnandi úr Kópavogin-
um og einn áhrifamesti umfjallandi
um íslenska rokktónlist hefur haldið
svo mjög á lofti í gegnum tíðina;
Fræbbblar, Ham, Rokk í Reykjavík
og Geislavirkir Utangarðsmenn eru
nú horfnir af lista. Hvað sem það
svo segir manni nema þá kannski
að sögufræg pönkgigg í Kópavogs-
bíó í denn eru á leið inn í gleymsk-
unnar dá?
Og meira um Kópavog. Víst er þar
gott að búa séu menn fyrir gleðina
og glauminn. Í gærkvöldi var opn-
aður þar stórglæsilegur 800 manna
skemmtistaður, Spot, og steig
Stefán Hilmarsson Kópavogsbúi
fyrstur allra á svið þar ásamt Sálinni.
Í næsta nágrenni er svo Players en
eigandi staðarins er einmitt Árni
Björnsson sem kenndur var
við Rauða ljónið, stofn-
andi Players og stefnir
í harða samkeppni um
glaða sveina og drottn-
ingar næturinnar nánast
á sama blettinum í
Kópavogi. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Harpa Arnardóttir
Aldur: 45 ára.
Starf: Leikkona og leikstjóri.
Foreldrar: Guðrún Guðmundsdótt-
ir verslunarrekandi og Örn Sigurðs-
son útskurðarmeistari.
Búseta: Reykjavík.
Stjörnumerki: Hrútur
Harpa Arnardóttir hlaut Grímuna sem
leikkona ársins fyrir hlutverk sitt í Steinar
í Djúpinu.
ELÍSABET AGNARSDÓTTIR: GULLIÐ TÆKIFÆRI SEM VARÐ AÐ GRÍPA
Grétar Örvarsson farar-
stjóri Kollywood-tökuliðs
VINNUÞJARKAR
Tökuliðið frá
Kollywood er
miklir vinnuþjarkar.
Vinnudagurinn byrjar
klukkan fimm á morgn-
ana og stendur til ellefu
á kvöldin. Stjörnur
myndarinnar,
þau Surya og
Nayanthara,
hafa því haft í nægu að snúast
undan farna daga. Grétar Örvars-
son er fararstjóri hópsins og hefur
séð um að allt gangi snurðulaust
fyrir sig á settinu. Tökuliðið
heldur af landi brott á sunnu-
daginn.
Sjónvarpið auglýsir eftir lögum til þátttöku í
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2010.
Þátttökueyðublað og reglur keppninnar eru á
heimasíðu RÚV: www.ruv.is/songvakeppnin
Höfundar skili lögum til Ríkisútvarpsins
ohf., Efstaleiti 1, 150 Reykjavík, merkt
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2010 eigi síðar
en mánudaginn 5. október 2009.