Fréttablaðið - 20.06.2009, Page 80

Fréttablaðið - 20.06.2009, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Þegar ég var á sjónum vorum við tveir um borð sem vorum með stúdentspróf. Enda vorum við alltaf kallaðir „menntamennirnir“ og mikið grín gert að því þegar okkur fórst eitthvað óhöndug lega. Ef við vorum saman á vakt á dekki og vorum mikið að þvælast hvor fyrir öðrum, eins og óvanir menn eiga til, gátu gamanmálin sem af því spruttu haft ofan af fyrir áhöfninni allmarga róðra. Þetta þótti körlunum segja allt sem segja þyrfti um tilgangsleysi æðri menntunar sem ekki fæli í sér neina kennslu í vinnubrögðum til sjós, því sem þjóðin hefði nú lífs- viðurværi sitt af þegar allt kæmi til alls. ÞETTA „sýndu mér hvað þú getur, ekki segja mér hvað þú veist“ við- horf karlanna um borð kom vel fram í afstöðu þeirra til stjórn- málamanna. Enginn var í meiri metum hjá þeim en Lúðvík Jóseps- son, þótt hann væri löngu horf- inn af sviði stjórnmálanna. Hann átti nefnilega að hafa haft það fyrir sið, þegar hann kom niður á bryggju að afla fylgis fyrir kosningar, að beita eins og eitt bjóð á meðan hann spjallaði við karlana. Það að sitja ekki auðum höndum yfir skrafinu heldur vera til gagns þótti þeim sýna að þar væri alvörumaður á ferð. Sjávar- útvegsráðherra sem var liðtækur beitningamaður hlaut að vita hvað hann söng. ÉG man að á sínum tíma fór þetta menntahatur skipsfélaga minna í taugarnar á mér. Mér fannst það í raun aðeins vera ástæðu- laus minnimáttarkennd gagn- vart þeim sem höfðu einhverja skólagöngu umfram skyldunám, því eins og þeir voru iðnir við að benda á gerði námsgráðan okkur svo sannarlega ekki að betri sjó- mönnum en hina sem stigið höfðu ölduna árum saman. Mér fannst þessi jarðbundna, pragmatíska rörsýn á lífið og tilveruna lýsa andlegri fátækt. MEÐ tímanum hef ég þó orðið þakklátari fyrir að hafa fengið að finna fyrir þessari lífsafstöðu á mínu eigin skinni. Síðan hef ég nefnilega kynnst fólki sem komið er af mörgum ættliðum mennta- stétta og hjá því orðið var við lítt sæmandi hroka gagnvart undir- stöðu þess; saltinu, slorinu og moldinni. Sumt af því hefur jafn- vel látið í ljós þau viðhorf að það að vinna fyrir sér með höndunum, „heiðarleg vinna“ eins og það var kallað á sjónum, feli í sér örlög verri en dauðann. Það viðhorf er nefnilega að minnsta kosti jafn- fátæklegt. Æðri menntun Í dag er laugardagurinn 20. júní, 171. dagur ársins. 2.55 13.29 0.03 1.29 13.14 1.00 Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.