Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1950, Blaðsíða 3

Samvinnan - 01.02.1950, Blaðsíða 3
Hin nýja ullarþvottastöð á Gleráreyrum, sem tók til starfa um áramótin. Húsið er áfast við hina nýju Gefjun, sem er i smíðum, og sést hið sérkennilega þak nýbyggingarinnar til hœgri á myndinni. — í baksýn Glerárþorp. Ullarþvottur í bæjarlæknum lilheyrir forfíðinni Nýtízku vélar þvo alla ullarframleiðslu landsins í hinni nýju þvottastöð Gefjunar ULLARÞVOTTUR í bæjarlæk og ullarbreiður til þerris í túnjaðr- inum er sýn, sem eftirkomendur okk- ar geta lesið um í sögubókum en ekki séð með eigin augum. Einnig á þess- um vettvangi hefur nú orðið bylting í framleiðsluháttum landsmanna. Nú um sl. áramót tók til starfa hin nýja ullarþvottastöð, sem Samband ísl. samvinnufélaga hefur látið reisa við Gefjun á Akureyri. Verksmiðja þessi á að vinna verk, sem þúsundir bænda og húsfreyja í sveit höfðu með hönd- um allt fram á síðustu ár. Ein stór vélasamstæða og nokkrir starfsmenn geta nú leyst af hendi allan ullarþvott- inn. Með framkvæmdum Sambands- ins á Gleráreyrum er leyst úr aðkall- andi þörf íslenzks landbúnaðar og ullarvinnslunni í landinu búin betri skilyrði en áður hafa þekkzt hér. FÓLKINU í sveitum landsins hef- ur fækkað mjög á síðustu árum. Þessi fólksfækkun hefur eðlilega orðið þess valdandi að ýmis störf, sem áður voru unnin heima í sveitunum, hafa ýmist lagzt niður, eða aukinn og bætt- ur vélakostur hefur komið í stað mannshandarinnar. Allt frá landnáms- tíð og fram á síðustu ár, var ullin þvegin og þurrkuð heima í sveitun- um. En fólksfæðin nú hin síðari ár og mörg ný störf, sem fylgja aukinni ræktun og auknum athöfnum, hafa leitt til þess, að það mátti heita und- antekning, að bóndi afhenti ull sína þvegna til sölumeðferðar. Augsýnilegt var, að leysa þurfti þetta mál með nýj- um aðferðum, og líklegast til árangurs var að leysa það fyrir forgöngu sam- vinnusamtakanna. Þegar fyrirsjáanlegt var, hvert stefndi í þessum málum, á- kvað Samband ísl. samvinnufélaga að byggja ullarþvottastöð af fuilkomn- ustu gerð um vélakost og fyrirkomu- lag. Var ákveðið að byggja hana í sambandi við Ullarverksmiðj. Gefjun á Akureyri, sem nú er verið að stækka og endurbyggja. Bygging ullarþvotta- stöðvarinnar hófst í september 1947. Og nú fyrir skömmu var húsið full- gert, vélar uppsettar og verksmiðjan gat tekið til starfa. Þar með eru upp- 3

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.