Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1950, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.02.1950, Blaðsíða 8
ljóslega hve starfræksla Iðunnar er þýðingarmikil fyrir þjóðina, og eins og nú er ástatt í gjaldeyrismálum þjóðar- innar, er ómetanlegt að hafa í landinu verksmiðju, sem innir slíkt hlutverk af liendi sem Iðunn gerir. Verksmiðj- an þyrfti að vera stærri og hafa betri vélakost til að geta gegnt hlutverki sínu ennþá betur, með því að bæta og auka framleiðsluna, sérstaklega fyrir skóiðnaðinn, sem stöðugt eykst í land- inu. Reykviskar gerðar heima, seldar úr landi og oft var verðið lágt, en nú vinnur Iðunn nær allar stórgripahúðir, sem til falla í landinu og gerir úr þeim margs konar leðurtegundir, sem mjög eru eftirsótt- ar til hinnar fjölþættu iðnaðarfram- leiðslu landsins. Þess má geta, að Ið- unn liefur áður flutt út nokkuð af fataskinnum fyrir ágætt verð, enda- er enginn vafi á því, að með bættri að- stöðu væri hægt að selja til útlanda mikið af skinnum til fata- og hanzka- gerðar. íslenzku sauðagærurnar eru i sýningarglugga. álitnar með því bezta hráefni sem völ er á í- slíka framleiðslu. Nú er hins vegar mikil vöntun í landinu á alls konar leðri og skinnum til skógerðar, fatagerðar, hanzkagerðar, töskugerðar, söðlasmíði og svo mætti lengi telja. Er því ekkert selt úr landi af þessum vör- um. — Með því að Iðunn vinnur svo að segja eingöngu úr innlendu hrá- efni, eða um 95% af verðmæti þess er íslenzkt en um 5% erlent, sézt aug- Um leið og talað er um bætta framleiðslu mætti jafnframt hvetja bændur landsins til að fara vel með húðirnar. Gæta þess að þær séu vel þvegnar og saltaðar, og að sjálfsögðu óskornar. Þó verksmiðjurnar geri sitt bezta til að vanda vöru sína, þá er það ekki nóg ef hráefni, sem þeim er feng- ið til að vinna t'tr, er lélegt. Það borgar sig ætíð að vanda vöru sína. Framkvæmdastjóri Iðunnar hefur frá byrjun verið Þorsteinn Davíðsson. Hefur hann numið sútun og meðferð skinna í Ameríku, Noregi og Þýzka- landi. Iðunn hefur nti einnig í þjón- ustu sinni þýzkan sútunarmeistara, Bernhard Spitta, sem er af súturum korninn í marga ættliði og er mjög fær í iðn sinni. Að endingu má geta þess að Iðunn framleiðir þessar tegundir af skinnum (Framhald á bls. IS) blómarósir skoða Iðunnarskó Husgögn, fóðruð með Iðunnarskinnutn, og leðurjakkar, hlýir og fallegir, sérstakiega hentugur vetrarklaðnaður. Sýningargestir virða fyrir sér fjölbreytta framleiðslu, sem unnin er úr Iðunnarskinnum. 8

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.