Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1950, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.02.1950, Blaðsíða 17
„Villidýraveiðin," eftir Lorjou. „Fólk er þreytt á Picasso," segir þessi nýi sþámaður. Nýja lislalízkan í París: PICASSO HAUSTSÝNINGAR í listinni — septembersýningar á íslandi — eru upprunnar í París eins og flest önnur tízka. Á þeim á hin svonefnda nútíma-myndlist höfuðvígi sitt. Þar hafa komið frain flestir þeir ,,ismar“ í myndlist, sem nokkuð hefur kveðið að nú hin síðari ár. Á sl. hausti voru sýnd nokkur einkennileg málverk í Salon d’Automne í París, og birtist hér að ofan mynd tveggja þeirra. Kunnur amerískur gagnrýnandi lýsti þeim og nýju lisatízkunni í París í skemmti- legri grein í amerísku tímariti nú fyrir skömmu. Verður hér á eftir stuðzt við frásögn hans. FORVITNIR listunnendur, segir hann, sem leggja leið sína um hægri bakka Signufljóts um þessar mundir, staðnæmast venjulega lengst við nokkur ný málverk, sem þar eru til sýnis í Musée des Beaux Arts. Mynd- irnar virðast vera frumstæðar og klaufalega gerðar, eins og vanþroska barn hafi verið að verki, en samt sem áður hefur þessi tízka í myndlistinni einhvern kraft fólginn í sér, því að hún heldur áfram að vera til og jafnvel sækja fram af eigin ramleik. í augum sumra er þarna tilraun í þá átt, að losa síðari helming aldarinnar úr viðjum fyrri hluta hennar, og þeir líta á haust- sýninguna síðustu sem fyrstu merki vors í listinni. En þetta er þó í rauninni allt gömul saga. Síðan snemma á 19. öld, hefur París lokkað myndlistarmenn til sín, eins og segull. Þangað liafa sótt lista- menn frá flestum löndum veraldar. í París fullkomnuðu impressjónistarnir listastefnu sína, litskrúð og kenningar, og hér voru nöfn Monet, Renoir, Sisley og Pisarro skráð á sögunnar spjöld. Og sem óhjákvæmilegt mótvægi gegn bylt- ingu þeirra birtist Cezanne, og áherzla sú, sem hann lagði á formið. Mótvægið gegn stefnu hans varð óhjákvæmilega kúbisminn, og árið 1905 fæddist enn litskrúðugra afbrigði, nefnilega „fauv- ismi“ Matisse og lærisveina hans. Og síðan hafa „ismarnir" komið hver á er "gamall fal" fætur öðrum, abstraktjónismi, fútúr- ismi, púrismi, o. s. frv., listinn er lang- ur og nöfnin torkennileg. En liver nýr „ismi“ fæddi um síðir af sér annan og svo koll af kolli. ÞESSI FORSAGA öll er augljós í listaverkum þeim, sem til sýnis eru í dag og kölluð eru nútímalist. F.n áhrif Picassos og Matisse hafa yfir- skyggt áhrif allra annarra isma-höf- unda og meistara. Og nú, þegar öldin er hálfnuð, rísa upp tveir nýjir spá- menn, sem líklegir eru til að skapa nýjan „isma“, sem aftur fæðir af sér mótvægi. Þessir tveir nrenn eru Bern- ard Lorjou og André Minaux. Þeir eru mest umtalaðir „september“-mann- anna í París um þessar mundir. Málverk Lorjous (sjá mynd að of- an) heitir „Villidýraveiðin“. Það er litskrúðugt risamálverk, sem óhjá- kvæmilega vekur athygli, en ekki endi- lega fögiruð í brjóstunr þeirra, sem sjá. Listagagnrýnendur Parísarblað- anna fóru yfirleitt ómjúkum lröndunr Filistearnir fengu óvænta bandamenn „Composition nr. 69“ eftir André Mineux. 17

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.