Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1950, Blaðsíða 9

Samvinnan - 01.02.1950, Blaðsíða 9
HVENÆR KOMA ATÓMORKUVERIN? FLESTAR uppgötvanir eiga í fyrstu erfitt uppdráttar, og tæknilega hagnýtingu þeirra ber fyrst og frernst að þakka bjartsýni og óbilandi trú fárra manna, sem rutt hafa öllum hindrunum til hliðar og borið uppgötvanirnar fram til sigurs og tæknilegs raunveruleika. Þannig er þessu varið enn í dag, einnig í hinum tæknilega vel þróuðu ríkjum vest- rænna þjóða. Þar er sæmilega vel séð fyrir flestum þörfum, og engin nýung, sem fram kemur, er án samkeppni eldri aðferða. Um atóm- orkuna skyldu menn ætla að gegni öðru máli; hún hefur til þessa verið með öllu ófáanleg, og ætti því eftir- spurn eftir henni að vera mikil og án samkeppni. Þessu er og þannig varið með atomorkuna sjálfa og það, sem hægt er að ná með henni einni. í Bandaríkjunum og Bretlandi er auk atómsprengjuframleiðslunnar þegar farið að nota atómorkuna til þess að framleiða geislavirk gervifrumefni, sem hin mesta eftirspurn er eftir til margvíslegra vísindalegra rannsókna og aðgerða. Sem aukaframleiðsla við þessa nýstárlegu efnavinnslu fæst mik- il varmaorka, sem nota má til þess að framleiða raforku á svipaðan hátt og gert er með öðrum eldri varmagjöfum svo sem kolum og olíu. Þó er hér sú að- staða, að raforkan er unnin með hag- nýtingu atómorkunnar sem nokkurs konar aukageta til lækkunar á hinum eiginlega reksturskostnaði. Allt annað viðhorf skapast ef raf- orkuvinnslan verður aðalmarkmið hagnýtingar atómorkunnar. Þá er kol- um, olíu og vatnsorku að mæta sem keppinautum. Fróðlegur er hér sam- anburður við vatnsorkuna, sem eink- um kemur til greina hér á landi. Végna þeirrar hringrásar vatnsins í náttúr- unni sem sólarorkan veldur, liafa vatnsorkuverin stöðugt ókeypis vatn til rekstursins. Aðalkostnaðurinn fer í að koma mannvirkjunum upp og halda þeim við. Stofnkostnaður vatns- orkuvera er því miður yfirleitt mun hærri en við orkuver, sem knúin eru með kolum eða olíu. í þess stað er reksturskostnaðurinn mun minni, þar f áframhaldi af greinum um kjarnorkxma, sem birzt hafa í Samvinnunni undanfarin ár, fer hér á eftir grein um möguleika þá, sem fyrir hendi eru nú til þess að ; hagnýta kjamorkuna til friðsam- | legra afnota. Dr. Sveinn Þórðar- son hefur ritað greinina fyrir < Samvinnuna. í eð kostnaður vegna eldsneytis er eng- inn. Þrátt fyrir þetta er þó jafnvel í vel þróuðum iðnaðarlöndum tiltölulega lítið um vatnsvirkjanir, vegna þess hve hár stofnkostnaðurinn er jafnaðarlega. Það er þó viðurkennt að stór vatns- orkuver veita ódýrasta raforku. Við atómorkuvinnslu eyðist hráefn- ið svo hægt og orkuauðgi efnisins milljónföld miðað við kol, að ,,elds- neytis“-kostnaður virðist varla geta orðið mjög hár. Hins vegar er stofn- kostnaður atómorkuvers með ölluin þeim útbúnaði, sem því fylgir, mun hærri en við vatnsorkuver. Það myndi þýða, að orkuvinnsla með atómorku kæmi aðeins þar til greina, sem sérstök skilyrði eru, svo sem þau, að aðrir orkugjafar séu ekki til á staðnum og að flutningskostnaður sé tiltakanlega mikill. Þegar því er haldið fram, að skammt sé þar til atómorkan verði hagnýtt í orkuverum, þá er það bjart- sýni, sem mun koma sér vel til þess að sigrast á margháttuðum örðugleikum, sem framundan eru, en sem þó mun hjá mörgum stafa af vöntun á saman- burði á rekstursgrundvelli þessarar nýju orkuvinnsluaðferðar við þær, sem fyrir eru. Sem samanburðar- grundvöll mætti gera ráð fyrir, að vinnslukostnaður úraníumsins og Þatinig hugsa menn sér atomaflstöð. 9

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.