Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1950, Side 4

Samvinnan - 01.02.1950, Side 4
Þvottavélasamstœðan stóra, 56 metra löng. Verið er að láta óþvegna ullina i jyrsta karið. Ullartcetarinn að starfi. runnin þau merkilegu tímamót í sögu ullariðnaðarins á íslandi, að hér eftir verður hægt að þvo alla ullarfram- leiðslu landsins með fullkomnum vél- um á einum og sama stað á landinu. 'V7'FIRUMSJÓNINA með byggingu J þvottastöðvarinnar höfðu þeir Jónas Þór, framkvæmdastjóri Gefjun- ar, og Helgi Bergs, verkfræðingur. Teikningar allar voru gerðar á teikni- stofu S.Í.S. af Sigvalda Thordarsyni, arkítekt. Byggingameistari var Friðjón Axfjörð. Ullarþvottastöðin er mikið hús, tvær hæðir, byggt úr járnbentri steinsteypu, 70 metra langt, 14 metra breitt, alls um 8600 rúmmetrar. Gólf- flötur er 980 fermetrar. Á efri hæð hússins eru geymslur fyrir óþvegna ull, og þar fer einnig fram mat á ull- inni, en nýrri skipan hefur verið komið á matið með tilliti til hinna breyttu viðhorfa. Ullin fer, að mati loknu, í rennu niður á neðri hæð hússins og’í þvottavélina. Fyrst geng- ur hún í gegnum tætara, sem greiðir sundur þófna ull og flókna, því næst gegnum 4 stór þvottakör, sem geyma mismunandi sterkan þvottalög. Gaffl- ar ýta ullinni til í þvottakörunum, en síðan fer hún á færiböndum úr einu karinu í annað. Milli karanna eru gúmmívalsar, sem pressa vatnið úr ullinni áður en hún kemur í næsta kar. Úr fjórða karinu fer ullin enn milli valsa, áður en hún fer í gegnum þurrkarann, sem skilar henni full- þurri. Þurrkarinn er hitaður með gufu. Ullarþvottavélasamstæðan er rafknúin. Hún er 56 metra löng, og er talin ein hin fullkomnasta vél sinnar tegundar, sem nú er til. Hún er smíð- uð hjá C. G. Sargent’s Sons Corp. í Granitville í Bandaríkjunum. Upp- setningu vélarinnar annaðist sérfræð- ingur frá þessari verksmiðju. Afköstin eru miðuð við það, að hægt sé að þvo þarna alla þá ull, sem framleidd er í landinu, enda þótt ullarframleiðslan aukist verulega frá því, sem nú er. EINS og fyrr segir, og sjá má á yfir- litsmynd þeirri, sem birt er hér að ofan, er ullarþvottastöðin byggð áföst við Gefjuni, sem nú er verið að stækka mjög mikið og endurbyggja. Gefjun hefur verið í eigu Sámbands- ins síðan 1930 og hefur stöðugt verið (Framhald á bls. 28) Ullin kemur úr þurrkaranum eftir þvottinn. — Starfsmenn að láta þvegna ull i þoka.

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.