Samvinnan - 01.05.1950, Síða 12
Kaupfélag
3 0 ára
Hannibal Valdimarsson, alþingism.,
núv. formaður kaupfélagsstjórnar.
Guðm G. Hagalin rithöfundur,
formaður félagsins 1935—1946.
Þrjú merkisspor.
Þrisvar sinnum hefir samvinnustefn-
an markað djúp spor í sögu ísafjarðar.
Fyrsta sporið markaði Kaupfélag ís-
firðinga hið eldra, sem Skúli Thorodd-
sen stofnaði í marzmánuði 1888. — Er
saga þess öll hin merkilegasta, en verð-
ur ekki sögð hér. — Um aldamótin var
starfsemi þess mikið farin að dragast
saman, og var félagsskapnum síðan
formlega slitið árið 1901.
Annað sporið var stigið með stofnun
Kaupfélags ísfirðinga hins síðara, þess
sem nú á 30 ára starfsafmæli að fagna.
Og þriðja merkissporið í samvinnu-
málum stigu ísfirðingar limmtudag-
inn 22. desember árið 1927 með stofn-
un fyrsta útgerðarsamvinnufélags á
íslandi, Samvinnufélags ísfirðinga.
Þá var atvinnulíf ísafjarðar í rústum,
en ávallt síðan hefur Samvinnufélagið
verið líftaugin í atvinnulífi bæjarbúa.
Verður atvinnusaga ísafjarðarbæjar
aldrei rituð svo, að Samvinnufélagið
eigi þar ekki merkan kapítula.
Félagsstofnun og fyrstu ór.
KAUPFÉLAG ÍSFIRÐINGA er
stofnað 30. apríl árið 1920, og voru
stofnendurnir aðeins 20 og stofnféð
4800 krónur. Var þátttakan þannig
ekki vonum meiri, og sjóðurinn ekki
digur í byrjun. En þetta var einvala-
lið. Fólk, sem bar gott skyn á sam-
vinnumál og vissi vel, hvað það vildi
með stofnun slíks félagsskapar.
Stofnandi félagsins og fyrsti for-
maður og framkvæmdastjóri var séra
Guðmundur Guðmundsson frá Gufu-
dal. Á honum mæddi undirbúning-
urinn að félagsstofnuninni og megin-
þungi félagsskaparins framan af. Hann
er því hinn óumdeildi fóstri kaupfé-
lagsins og faðir.
Þó að Kaupfélag ísfirðinga sé nú
orðið 30 ára gamalt, er samt mikill
meirihluti hinna 20 stofnenda þess
ennþá á lífi, eða a. m. k. 13 þeirra. Tel
Jónas Tómasson, tónskáld,
formaður kauþfétapsitts 1946—1948.
ég eftir beztu heimildum, að þeir séu
þessir:
Bjarni Jóhannesson, bakari, ísafirði.
Einar Eyjólfsson, fiskimatsmaður, Isa-
firði. Guðjón Jónsson, trésmiður,
Hólmavík. Guðmundur Árnason,
verkamaður, ísafirði. Guðmundur E.
Geirdal, skáld, Reykjavík. Haraldur
Guðmundsson, alþingismaður, Rvík.
Helgi Sveinsson, fasteignasali, Rvík.
Jón Þ. Ólafsson, trésmíðameistari, ísa-
firði. Jón H. Sigmundsson, bygginga-
meistari, ísafirði. Magnús Ólafsson,
prentsmiðjustjóri, ísafirði. Sigurður
Guðmundsson, bakarameistari, ísa-
firði. Sigurgeir Sigurðsson þá sóknar-
prestur á ísafirði, nú biskup. Vil-
mundur Jónsson, þáverandi héraðs-
læknir á ísafirði, nú landlæknir.
í ágústmánuði 1920 hóf félagið
verzlunarrekstur. Opnaði það sölubúð
með almennar matvörur í húsi Bök-
unarfélags ísfirðinga og varð aðal-
heimkynni kaupfélagsins þar um
nokkurra ára skeið.
Haustið 1921 tók sonur séra Guð-
mundar, Ketill, við forstöðu félagsins,
og hefur Ketill Guðmundsson verið
forstjóri Kaupfélags ísfirðinga alla tíð
síðan.
Aðalverzlun og tvö útibú.
Viðskiptin við bæjarmenn jukust
jafnt og þétt, og varð húsrýmið í Silf-
urgötu brátt of lítið.
Sumarið 1927 tókst að fá stóra og
góða verzlunarbúð á leigu í Hafnar-
stræti 1, og fluttist aðalverzlunn nú
þangað. Jafnframt hafði félagið þó
útibú á gamla staðnum í Silfurgötu og
hélzt svo fram til ársins 1933.
Tveimur árum síðar, sumarið 1929,
færði félagið enn út kvíarnar og setti
upp útibú í efri hluta kaupstaðarins,
í Hrannargötu 8, áður verzlun Leós
Eyjólfssonar. Starfaði þetta útibú fram
á árið 1936.
Um þetta leyti var lítið að því gert
12