Samvinnan - 01.12.1950, Qupperneq 10
undanfarin ár og málað í þessu augna-
miði, enda eru málverk á sýningunni
víða að, t. d. frá Hafnarfirði, austan
af Héraði, að ógleymdum myndun-
um, sem málaðar eru í Hlíðinni og
austur undir Eyjafjöllum.
ALLT frá Jrví að Ólafur Túbals
hélt fyrstu sýninguna á verkum
sínum, hefur listunnendum verið ljóst,
að hér er á ferð mikill hæfileikamað-
ur. Einar skáld Benediktsson mun
hafa verið fyrstur til að vekja athygli
á verkum Ólafs. Gerði hann það f
dómi um allsherjarsýningu, sem Ól-
afur og margir fremstu listamenn okk-
ar tóku þátt í. Minnist Ólafur þess
með lilýrri ánægju, að Einar hafi
farið mjög vinsamlegum orðum um
sýninguna.
/ÁLAFUR TÚBALS er fæddur og
uppalinn í Múlakoti í Fljótshlíð,
og J^ar býr hann nú myndarlegu búi,
rekur gistihús og málar eftir því sem
tími vinnst til.
Allt fram til ársins 1934, að faðir
Ólafs, Túbal K. M. Magnússon, veikt-
ist, hafði Ólafur verið ákveðinn í að
verða málari. En skyldan kallaði hann
til búsins fyrir sextán árum og síð-
an liefur hann búið á föðurleifð sinni
og unað vel hagi sínum í sambýli við
móður sína, Guðbjörgu A. Þorleifs-
dóttur.
Hugur Ólafs hefur allt frá bernsku
hneigzt að listum. Hann hefur teikn-
að frá því hann var barn að aldri og
á yngri árum átti hann ekki heitari
ósk en Jxi, að fá að helga sig listinni
einvörðungu.
Móðurbróðir hans, Eyjólfur Þor-
leifsson, mun liafa verið fyrstur til að
glæða listaáhuga hans, en Eyjólfur
var mjög listhneigður maður, gerði
mikið af því að teikna, skar út og
smíðaði mikið. Þá var Jiað og mikil
hvatning hinum verðandi málara, að
Ásgrímur Jónsson dvaldi mörg sumur
á heimili hans í Hlíðinni og fékk
Ólafur [ná oft að fylgjast með honum
og naut nokkurra leiðbeininga hjá
honum. Sama er að segja um Jón
Stefánsson, sem dvaldi sumarlangt í
Múlakoti og málaði, á yngri árum
Olafs.
Fimmtán ára gamall réðist Ólafur
til Einars Jónssonar, húsamálara í
Bóndinn, gestgjafinn og málarinn
ÓLAFUR TÚBALS
jNÓVEMBERMÁNUÐI síðast liðn-
I um opnaði sérstæður íslenzkur lista-
maður málverkasýningu í sýningar-
sal Málarans í Reykjavík. Maðurinn
er Ólafur Túbals, bóndi, gestgjafi og
listmálari í Múlakoti í Fljótshlíð.
Á sýningu Jæssari voru 53 stórar
olíu- og vatnslitamyndir og um 20
smærri vatnslitamyndir. Einkennd-
ust myndirnar flestar af skærum og
björtum litum og í mótívinu virtist
leitazt við að túlka sannleikann í
fegurð náttúrunnar.
Ólafur, bóndi í Múlakoti, hefur
ekki haldið málverkasýningu síðast-
liðin sextán ár. Á tímabilinu 1922—
1934 hélt liann liins vegar oft sýn-
ingar bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Búsannirnar undanfarin sextán ár
hafa valdið því, að Ólafur hefur ekki
málað meira en það, sem hann hefur
selt jöfnum höndurn. Fyrir tæpum
Jjrem árum ákvað hann liins vegar
að selja ekkert af myndum, en safna
{:>eim saman og koma upp sýningu.
Hefur hann ferðast mikið um landið
10