Samvinnan - 01.12.1950, Blaðsíða 17
Nýlega haía íornfræðingar fundið þann stað, þar
sem álitið er, að Pétur postuli hafi verið greftraður,
og með því sannað erfisögnina um, að hann hafi
verið líflátinn í Rómaborg og grafinn þar. Gröfin
fannst í neðanjarðarhellum undir Vatikaninu (pífa-
garði) í Rómaborg. Fundur þessi hefur orðið til þess
að endurvekja áhuga manna fyrir persónu og sögu
þessa brautryðjanda frumkristninnar, sem er svo sér-
stæður, „að enginn gæti fundið hann upp".
Rubens, 1577—1640.
Michelangelo, 1475—1515.
&lztu myndirnar um Pétur eru svo keimlíkar hver ann-
arri, að það eitt mælir með því að taka þær trúanlegar og
sannar. Þær sýna sterklegan mann, ennisháan og andlits-
drættina nokkuð grófa, svipurinn er bjartur og óskelfdur,
hárið grátt og stuttklippt, skeggið stutt og þétt, silfurhvítt og
hrokkið. Hann var sköllóttur á hvirflinum, en hárið var
þykkt kringum skallann. Var það líkast krúnurakstri munka,
enda mætti halda að krúnurakstur sá, sem gerðist tízka hjá
munkum síðari alda, væri eftirlíking Péturs.
Samkvæmt frásögnum samstofna guðspjallanna kallaði
fesús Pétur fyrirvaralaust til fylgdar við sig, þegar Pétur var
að fiska á Galileuvatninu. Jóhannes telur Pétur hafa verið
lærisvein Jóhannesar skírara og Andrés bróðir hans hafi
leitt hann til Jesú. Samkvæmt þessari sögn var það Andrés,
sem færir Pétri fyrstur þessar fréttir: „Við höfum fundið
Messías, það er útlagt: Smurður," og Jesús tekur á móti
Pétri með orðunum: „Þú ert'Símon Jóhannesson; þú skalt
heita Kefas, sem er útlagt: Klettur." ýjóh. I., 42). En í frá-
sögn Lúkasar er köllun Péturs í sambandi við fiskidráttinn
mikla; Jóhannes lætur hann ekki gerast fyrr en eftir upp-
risuna.
Merkasta atriðið í lífi Péturs, fyrir krossfestingu
Jesú, er játning hans við Sesareu Filippi á guðdómi
Krists. Játning þessi er ekki byggð á neinum innri
skilningi. Þvert á móti, hann hafði rétt áður verið
að neita spádómi Jesú um pínu hans og dauða, og
hafði hlotið ávítur fyrir það hjá meistara sínum.
En þegar Pétur lýsir yfir trú sinni á guðdóm Krists,
segir Kristur við hann: „Sæll ert þú, Símon Jóhann-
esson, því að hold og blóð hefur eigi opinberað þér
það, heldur faðir minn í himnunum. En ég segi
jrér: Þú ert Pétur, og á þessum kletti mun ég byggja
söfnuð minn, og hlið Heljar skulu eigi verða hon-
um yfirsterkari. Eg mun gefa þér lykla himnarík-
Þessi bronce-tnynd af Pétri með lyklana
blasir við augutn pílagrima, sem koma til
Vatíkanborgarinnar. Hún er i basiliku Pét-
urskirkjunnar. Hœgri fótur myndarinnar er
orðinn máður og slitinn af kossum milljón-
anna á liðnum öldum. Myndin er sögð gerð
af Arnolfo di Cotnbio um árið 1300.
17