Samvinnan - 01.12.1950, Blaðsíða 23
ÓLAFUR TÚBALS.
Frá Capri. Teikning ejtir H. C. Anciersen.
ESSAR teikningar hans allar
standa í nánu sambandi við ljóð
Iians og sögur, ekki beinlínis að vísu,
með því að þær eru ekki tengdar efni
þeirra, en þær eru sprottnar a£ sömu
sköpunarþránni og gáfunni, sem fékk
byr undir báða vængi, er útsýni til
hins stóra heims opnaðist honum.
Þótt Andersen teiknaði margt um
dagana, er nafn hans þó ekki geymt
f huga milljóna manna í flestum þjóð-
félögum þess vegna. Það eru hin
snilldarlegu og djúphugsuðu ævin-
týri, sem varðveita nafn hans. Þau
hafa verið þýdd á flestar þjóðtungur
og þau eru orðin hluti af lífsþroska
og uppeldi hvers ungmennis í menn-
ingarlöndunum. En teikningarnar eru
samt merkilegar. Þær varpa ljósi á
hæfileika þessa merkilega skálds, sýna
þátt í fari þess og skapgerð, sem ekki
er eins kunnur. Fyrir því Iiafa allir
sem lært liafa að meta snilligáfu H.
C. Andersen, gaman af að skoða mynd-
ir lians og læra þannig nokkuð nýtt
um manninn. Af þessum ástæðum eru
sýnishorn teikninganna birt hér.
Villa Borghesa i Róm. Þar b]ó H. C.
Andersen, meðan hann dvaldist í Rótn.
(Framhald af bls. 11)
enda þótt úr rættist síðar. Vikurmagn-
ið var svo mikið þar austurfrá, að á
einum degi fluttu sjálfboðaliðar úr
Reykjavík 200 bílhlöss af vikursandi
í burtu og var það bara af hlaðinu og
úr trjágarðinum í Múlakoti.
A þessuni þrengingartímum eitrað-
ist allt vatn þar austurfrá og minnist
Ólafur þess, að einn daginn hafi hann
sótt 1100 lítra af vatni um hálfs ann-
ars kílómetra leið lianda mönnum og
skepnum á bænum. Varð hann að
fella mest allan bústofn sinn eða selja
í burtu í framhaldi af þessum ham-
förum náttúrunnar árið 1947.
En eins og náttúran sjálf skóp þessa
erfiðleika svo tók hún líka þátt í að
leysa þá. Laugardag fyrir páska gerði
ofsarok með snjókomu og fauk þá
mest af öskunni í burtu. Jarðvegur-
inn náði sér ótrúlega fljótt og var
næsta sumar sæmilegt. Nú hefur Ólaf-
ur að mestu komið bústofni sínum
upp að nýju og hefur nú tíu kýr,
fimmtíu fjár, sex hross. Auk þessa á
hann og jeppa.
Ólafur hefur, ekki síður en aðrir
bændur, lagt kapp á að slétta og rækta
jörð sína. Þegar hann tók við búinu
árið 1934 voru um fjórar dagsláttur
sléttar í Múlakoti. Nú er hver blettur
sléttur og allt girt. Auk þess hefur
Ólafur byggt upp öll útihús í Múla-
koti á búskaparárum sínum svo og
reist nýtt gistihús.
AÐ MÁ með sanni segja, að Ól-
afur Túbals hafi afkastað þre-
földu starfi. Hann hefur verið dug-
mikill bóndi um sextán ára skeið, at-
hafnasamur gestgjafi og afkastamikill
listmálari, þrátt fyrir miklar annir.
Málverkasýning Ólafs í sýningar-
sal Málarans gefur til kynna, að hér
er á ferð fast mótaður og listfengur
málari, sem hefur náð meiri árangri
í list sinni heldur en ytri aðstæður —
hans þrefalda ævistarf — gefa tilefni
til. Þess vegna þótti Samvinnunni til-
hlýðilegt að gefa lesendum sínum
tækifæri til þess að sjá prentmyndir
af nokkrum myndum lians og birtast
þær hér að framan.
23