Samvinnan - 01.12.1950, Blaðsíða 25
og blaðið brotið eins og myndin
sýnir. Byrjið lengst til hægri. og
brjótið pappann eins og „harmon-
ikku“. Síðan er klippt eftir strik-
unum á teikningunni og þegar því
er lokið er slétt úr pappanum og
þá standa á borðinu hjá okkur eins
margir jólasveinar og við höfum
brotið pappann oft. Jólasveinarn-
ir haldast í hendur, en til þess að
loka hringnum verðum við að líma
saman hendur þeirra, sem eru á
endunum. Ef tími er til, er liægt
að lita karlana báðum megin, og
á þá a. m. k. liúfan að vera rauð.
Jólasveinar þessir geta orðið
skemmtilega skrautlegir, séu þeir
klipptir út úr einlitum rauðum
pappa,. en þetta er að sjálfsögðu
hægt að hafa eins og hver vill.
Ieg, ef smekklega er að farið, og ![
góð tilbreyting frá því að hafa þar
kerti í stjaka, eins og oftast er.
I ■
Gleðileg jól! ■ < :j;,
Jólasælgæti
Flestum mun finnast nokkuð
dýrt að kaupa sælgæti í jólapokana
í ár. Með því móti að útbúa eitt-
hvað af því heima, spörum við
margar krónur, en munum samt fá !
ágætis sælgæti, bæði til þess að hafa • J;
í jólakörfunum og eins til þess að
hafa í skál með öðru.
að fá þannig gamalkunningja fram
í,: dagsljósið á jólunum. Börnin
ipunu ekki hvað sízt kunna að meta
slíkt, og minningar, sem barn eign-
ast þannig í foreldrahúsum, munu
lengi fylgja því og ylja um hjarta-
ræturnar á efri árum.
r
HÉR birtast nokkrar jólamynd-
ir, sem hægt er að styðjast við
til að útbúa jólasveina og jólatré.
Retta er ætlað til borðskrauts og er
klippt út úr einlitum þunnum
. pappa.
Jólasveinninn er teiknaður á blað,
Jólatréð er teiknað eftir þessari
mynd og er bezt að nota pappa og
helzt grænan að lit. Annars er tréð
litað grænt og prýtt með nokkrum
kúlum og körfum. Jólastjarna í
toppnum setur fallegan svip á tréð.
Þegar búið er að klippa tréð út,
er það brotið eftir punktalínunum,
límt saman, og þá er tréð tilbúið.
Þótt það sé hvorki stórt né angandi
getur það verið til skrauts á kaffi-
borðinu miðju, og eru jólasvein-
arnir Játnir dansa í kring.
Slík skreyting á kaffi- eða matar-
borðinu miðju getur verið smekk-
Brenndar möndlur: |!;
V& kg. möndlur — i/2 kg flórsyk- !;
ur — I14 dl. vatn. !;
Möndlurnar eru þurrkaðar í klút !;■'
og settar í pott ásamt flórsykrin- ;;
um og vatninu. Látið sjóða við ■;;’
jafnan liita og hrært stöðugt í á ;!
meðan. Þegar þetta er orðið alveg
þurrt, er það sett yfir enn minni !;
hita og stöðugt hrært í, þar til það !;
verður aftur fljótandi og möndl- ;;
urnar gljáandi. Þá eru þær strax ;;:
settar á smurða plötu og aðskildar ;!
meðan þær eru heitar. Látnar ;!
þorna vel. <!
25