Samvinnan - 01.12.1957, Síða 17
verið til kostað. Erfitt hefur verið
að selja folaldakjötið undanfarið.
Samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofunni voru 5.085 hross í Skaga-
firði sl. ár, eða nálægt 10 hross á
bónda. Fullvíst er að sú tala er röng,
og að hrossin eru sennilega nær því
að vera helmingi fleiri.
MÁTTUR SAMTAKANNA.
Eins og annarsstaðar á landinu
standa framfarir í búnaði Skagfirð-
inga í sambandi við þróunina í sam-
vinnusamtökum héraðsins. Kaupfé-
lag Skagfirðinga er með myndarleg-
ustu kaupfélögum landsins og í örum
vexti. Félagssvæðið fer eftir sýslu-
takmörkum Skagafjarðarsýslu og nær
að austanverðu í Hjaltadal, en þar
fyrir norðan tekur við félagssvæði
Kf. Austur-Skagfirðinga.
I kaupfélaginu eru 1143 félags-
menn, en félagið skiptist í 11 deildir
í 10 hreppum og Sauðárkrókskaup-
stað. Að meðtöldum þeim, sem félags-
menn hafa á framfæri, má segja, að
talan sé 2690. Ibúatala á öllu félags-
svæðinu er hinsvegar 2900. Félags-
menn skiptast þannig eftir atvinnu-
greinum:
Bændur (af 514 alls) 437
verkafólk í sveitum 217
verkafólk á Sauðárkróki 328
verzlunar- og skrifstofufólk 23
embættis- og sýslunarmenn 41
aðrir 23
Aðalfélagar samtals 1069
+ aukafélagar, sem flestir
eru aðalfélagar á Hofsósi 74
1143
REKSTUR KAUPFELAGSINS.
Kaupfélag Skagfirðinga hefur með
höndum margvíslegan og umfangs-
mikinn rekstur. Velta félagsins sl. ár
var 43,5 milljónir króna. Kaupfélag-
ið rekur 6 sölubúðir: Mat-, nýlendu-
vöru- og búsáhaldabúð, í annari eru
vefnaðarvörur, fatnaður og skór. í
þeirri þriðju eru bygginga- og raf-
magnsvörur og svo er kjötbúð, mjólk-
urbúð og varahlutabúð.
K. S. hefur margvíslega starfsemi í
stórbyggingu (4000 ferm.),sem nýlega
Blóminn úr kvenþjóð Sauðárkróksbcejar við fisk-
vinnu í hraðfrystihúsinu.
P
befur verið endurbætt. Byrjað var á
þeirri byggingu 1950 og þrem árum
seinna var hún tekin í notkun. Þar
er sláturhús fyrir félagssvæðið. Þar
hefur verið hægt að farga 1200 fjár
á dag, en eftir stækkun, sem nú er
verið að gera á húsinu, er gert ráð
fyrir, að afkastagetan aukist upp í
1600 á dag.
Á sama stað er kjötfrystihús fyr-
ir tilsvarandi slátrunarafköst og
geymslupláss fyrir 30 þúsund kindar-
skrokka. I kjötfrystihúsinu eru á
fimmta hundrað frystihólf, sem fé-
lagsmenn eiga.
I stórhýsi þessu er hraðfrystideild,
sem eingöngu er notuð fyrir fisk.
Fiskverkunaraðstaðan þar er leigð
(Framh. á bls. 29).
Tobías Sigurjónsson, bóndi í Geldingaholti, og for-
maður Kaupfélags Skagfirðinga.
Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki. Síðast liðið ár voru innvegnir 2.550.000 lítrar
af mjólk, en 80% af því fara í vinnslu.
SAMVINNAN 17