Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1957, Page 40

Samvinnan - 01.12.1957, Page 40
Kvöldfundir með 3 þúsund konum Höfundur þessarar greinar, Örlygur Hálfdanarson, fór í sumar um landið og efndi til húsmœðrafunda á vegurn kaup- féiaganna og frœðsludeildar SIS. Fyrsti fundurinn var hald- inn í Ilveragerði mánudaginn 13. maí. Þann dag opnaði Kaupfélag Arnesinga fyrstu kjörbúðina á staðnum. Bauð Eg- ill Thorarenssen, kaupfélagsstjóri, öllum konum í Ölfus- og Tlveragerðisdeild að koma og skoða búðina, en síðan sóttu þœr fundinn, þar sem Egill rœddi við konumar um málefni samvinnufélaganna í upphafi fundarins. Frá Ilveragerði lá leiðin um aðra bœi Ámessýslu, Suðumes og Borgarfjörð og þaðan allt norður til Raufarhafnar. Eftir það var gert nokk- nrt hlé á fundunum, en í ágúst var aftur farið af stað og fundir haldnir á svœðinu frá Homafirði að Þórshöfn, og síð- an komið til Vestmannaeyja. Höfðu þá verið haldnir alls JfJf fundir og yfir 3000 konur sótt þá. Ekki er ástœða til að fjöl- yrða meira um fundina hér, en Örlygi gefið orðið. GuSrún Knstinsdóttir, húsmæSrakennari, með síldina og hníjinn á lofti. Flogið á húsmœðrafund. Húsmæður Suðursveit, húsmæður Suð- ursveit: Húsmæðrafundur verður haldinn að Hrolllaugsstöðum í kvöld klukkan 9. Sýndur verður tilbúningur síldarrétta, notkun Butterick-sniða og kvikmynd um matartilbúning. Afhentur verður bæklingur með síldarréttauppskriftum. Komið og bragðið Ijúffenga síldarrétti. Allar konur velkomnar meðan húsrúm leyfir. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga. Þessari auglýsingu varpaði þulur út- varpsins yfir landsbyggðina fimmtudag- inn 8. ágúst síðastliðinn. Hann las þetta með sínum vanalegu blæbrigðum og var alveg eins og hann átti að sér að vera, að því er bezt varð heyrt. Hann hafði líka lesið samhljóða auglýsingu daginn áður, og ekkert látið sér bregða. Það var heldur engin ástæða til þess. Hjá honum var hér aðeins um að ræða eina auglýs- ingu af tugum annarra, sem um hendur hans fara á degi hverjum. Nú hóf hann að lesa ýmis konar dansauglýsingar og ég bað flugmanninn að loka fyrir út- varpið. Það var notalegt að halla sér aft- ur a bak í mjúku sæti vélarinnar og láta fara vel um sig. Hugurinn hvarflaði til tveggja síðustu daga, ýmsar myndir komu og fóru fyrir hugskotssjónum mín- um; þokan hafði lagzt yfir allt landið á þriðjudag og flug hafði þar af leiðandi lagzt alveg niður. „Því miður, það verð- ur ekki flogið í dag, en það verður athug- að klukkan 9 í fyrramálið. Vilduð þér gjöra svo vel og hringja þá.“ Rödd síma- stúlku Flugfélagsins hljómaði enn fyrir eyrum mínum. Þetta hafði hún sagt í gær. „Hringdu í Björn Pálsson, hann hef- ur oft flogið með mig hingað austur, þeg- ar hinir hafa brugðizt. Það verður held- ur ekkert dýrara. Hér bíður fólk eftir flugfari og það myndi fegið taka vélina aftur suður.“ Það var Asgrímur Halldórs- son, kaupfélagsstjóri á Höfn í Hornafirði, sem mælti á þessa leið. Eg hafði hringt í hann, þegar flugfélagsdaman hafði gefið mér áðurgreint svar, og veðurfregnir lof- að engu góðu um flugveður næsta dag. „Nei, þokan liggur svo lágt, það er eng- inn möguleiki á flugi í dag. Eg sé ekki einu sinni turninn á Sjómannaskólanum héðan, og er hann þó ekki langt í burtu. Við skulum athuga málið strax og morgnar og veðurfregnir hafa borizt að austan. Þér liggur svona mikið á, hvað þarftu að gera austur?“ Og Björn Páls- son skildi mig vel, þegar ég sagði honum, að við ættum að halda húsmæðrafund að Hrolllaugsstöðum daginn eftir, og bú- ið væri að auglýsa fundi um allt Austur- land, sem allir myndu ruglast, ef ekki yrði náð til Hornafjarðar í tæka tíð. Strax klukkan níu morguninn eftir hringdi ég á Flugfélagið, en fékk heldur ömurlegt svar. Það yrði ekkert flogið fyr- ir hádegi, en flugskilyrði athuguð aftur klukkan 3. Þó virtist mér þokunni hafa létt þó nokkuð. Vart var tólið komið aftur á sinn stað, er síminn hringdi. „Góðan daginn, þetta er Björn Pálsson. Eg hef athugað flugskilyrði til Horna- fjarðar, og þau eiga að vera all sæmileg. Gætuð þið verið mætt um hálf-ellefu?“ Þvílíkar fregnir, þvílíkur maður! Það átti þá svo að fara, að við kæmumst á ákvörðunarstað í tæka tíð. „Já, já, við verðum örugglega mætt, takk fyrir kær- lega.“ Við mættum líka um hálf-ellefu, jæja, kannski örfáar mínútur yfir. „Æ, ég hef gleymt grænmetinu heima í ís- skáp í öllu írafárinu. Hvað á ég að gera?“ spurði Guðrún. Já, svona byrja flest ferðalög, þar sem konur eru með í för- inni. Láttu mig um það, ég hef reynsluna. A grænmetisins var ekkert hægt að fara né gera. Það varð því að sækja það og síðan var hægt að leggja af stað. Allt í einu vaknaði ég upp úr þessum hugleiðingum við það, að flugvélin tók 40 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.