Samvinnan - 01.10.1963, Blaðsíða 4
SAMW
Eins og vera bar, var æskan jremst
í flokki til viðskvpta við hinn nýja
banka. Óttar Jóhannsson, 13 ára
sendisveinn hjá Samvinnutryggingum,
(að ofan) ,var mættur með bankabók-
ina sína niðri í Bankastræti góðri
stundu áður en dyrunum var lokið
upp. Það gerði Guðjón Styrkársson
(myndin til hægri) skrifstofustjóri
bankans. Eins og myndin sýnir, þurfti
hvorki að hvetja unga né gamla
Samvinnubankinn hefur
Hinn 31. ágúst síðastliðinn hóf Samvinnubanki Islands starfsemi sína í nýjum
og glæsilegum húsakynnum að Bankastræti 7, Reykjavík. Tók hann þá jafn-
framt við öllum réttindum og skyldum Samvinnusparisjóðsins, sem hætti þá
störfum eftir níu ára starfsemi. Með stofnun hins nýja banka hefur áratuga
gömluin draumi íslenzkra samvinnumanna verið hrundið í framkvæmd, og er
þess að vænta að bankinn verði samvinnuhreyfingunni hér á landi mikil lvfti-
stöng á ókomnum árum.
stuðningsmenn samvinnuhreyfingarinnar til viðskipt-
anna, því á hæla Óttars gengur inn Jónas Þorbergsson,
fyrrverandi útvarpsstjóri, einn okkar elztu og öruggustu
samvinnumanna. A neðstu myndinni er Óttar kominn
að afgreiðsluborðinu, þar sem liann leggur fimm hundr-
uð krónur inn á bókina. Það er Ingunn Ragnarsdóttir,
gjaldkeri, sem afgreiðir hann, en fleiri viðskiptavinir
sjást btða álengdar.
Ljósmyndir:
*
Þorvaldur Agústsson
4 SAMVINNAN