Samvinnan - 01.10.1963, Qupperneq 5
starfsemi
Bankinn er stofnaður fyrir forgöngu á-
byrgðarmanna Samvinnusparisj óðsins
og samvinnusamtakanna. Mun hann
annast alla innlenda bankastarfsemi.
Bankastjóri er Einar Agústsson, sem
undanfarin sex ár heíur verið forstöðu-
maður Samvinnusparisjóðsins, skrifstofu-
stjóri Guðjón Styrkársson, aðalbókari
Einar S- Einarsson og aðalgjaldkeri Sig-
urður G. Gunnarsson. — I bankaráði
eiga sæti Erlendur Einarsson forstjóri,
formaður, og framkvæmdastjórarnir
Hjörtur Hjartar og Vilhjálmur Jónsson.
— I fréttabréfi septemberblaðs Sam-
vinnunnar er nánar x ikið að stofnun
bankans.
Það var Jónas Þorbergsson, sem jyrstur gekk til viðtals við bankastjóra
liins nýstofnaða Samvinnubanka. A löngum æviferli hefur j>að aldrei spurst
um Jónas, að liann liafi hopað uni fet, ef liagur samvinnuhreyfingarinnar
var annars vegar, og nokkurs betra er varla hœgt að óska hinum nýja banka,
en að honum verði sem flestra slíkra stuðningsmanna auðið. — A myndinni
að neðan sjcist allir starfsmenn bankans, tuttugu og fjórir að tölu. Allt er
þetta ungt fólk og glæsilegt í sjón og raun, og vonandi verður framtíð þess
og bankans ekki siður „blómleg“ en körfurnar, sem standa í röð fyrir framan
borðið.
SAMVINNAN 5