Samvinnan


Samvinnan - 01.10.1963, Page 16

Samvinnan - 01.10.1963, Page 16
FYRSTA IDNSTEFNA SAMVINNU- MANNA REYKJAVlK Iðnstefna samvinnumanna var haldin í hinu nýja stórhýsi að Ármúla 3 í fyrstu viku septembermánaðar sl. Var iðn- stefna þessi hin fyrsta, sem haldin er í höfuðborginni, en til þessa hafa þær verið háðar á Akureyri. Þarna sýndu iðnvarning tíu verksmiðjur SIS og fimm verksmiðjur kaupfélaga víðs vegar af landinu. Framkvæmdastjóri þessarar glæsilegu sýningar var Jón Arnþórsson. Margvíslegar nýjungar í iðnframleiðslu komu fram á sýningunni, og er ekki að efa, að þær eigi eftir að setja svip sinn á markaðinn á næstu mánuðum. Þótti sýningin í heild takast vel, enda sýning- arsvæðið rýmra og hentugra en nokkru sinni fyrr, um sex hundruð fennetrar að stærð. — Fjöldi gesta kom á stefnuna, þar á meðal forseti Islands, herra Ásgeir Ásgeirsson, og ráðherrarnir Bjarni Bene- diktsson og Gylfi Þ. Gíslason. — Iðn- stefnunnar er nánar getið í fréttabréfi septemberblaðsins, en hér látum við fylgja nokkrar rnyndir, er Þorvaklur Ágústsson tók á sýningunni. 16 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.