Samvinnan - 01.08.1971, Síða 3

Samvinnan - 01.08.1971, Síða 3
Borgarnesi, 2. júlí 1971. Herra ritstjóri. Varla verður um það deilt, að Samvinnan er eitt fjöl- breyttasta tímarit, sem út er gefið á íslandi. Auk þess er aðalstyrkur þess fólginn í tvennu: mikilli hugkvæmni og góðu skipulagi. Fjölmörg þjóð- mál eru tekin þar til ítarlegrar athugunar, greind skipulega í flokka og um þau fjallað af ýmsum glöggskyggnum mönn- um. — Og pappír, prentun og prófarkalestur er allt fágæt- lega vandað. En þar með er ekki öll sagan sögð. Svo sem fram hefur kom- ið í bréfum frá lesendum, fær Samvinnan ekki einróma lof. — Ég hef verið kaupandi hennar um fjölda ára, trúað á getu hennar til góðra hluta og óskað veg hennar sem mestan. — Hins vegar verð ég oft fyrir allbeizkum vonbrigðum. Er margt látið fljóta með inn í ritið, sem þangað á ekkert er- indi. — Frjálslyndi er yfirleitt afbragðs kostur. En jafnvel þar verður að gæta nokkurrar var- úðar, og t. d. í þessu falli er ekki hægt að hleypa inn í ritið orðglöðum mönnum, sem ekk- ert hafa fram að færa, er að gagni megi koma, engan lífs- neista, er vísi almenningi leið til hárra sjónarmiða. Ýmsir annmarkar Samvinn- unnar eru í mínum augum mjög augljósir. En ég lít svo á, að hjá þeim megi að mestu sneiða með lítilli fyrirhöfn. Þó að ég sé ekki spámaður, vil ég drepa hér á nokkur atriði: 1. Þegar ritstjórinn pantar greinar um ákveðið efni, liggur beint við að fara þess á leit við greinarhöfunda, að þeir láti skoðanir sínar í ljós í sem stytztu máli. Ljóst er, að á þess- um tímum hraðans eru lang- lokugreinar ýmist illa lesnar eða alls ekki. Þegar oröa- flaumurinn er óskaplegur, get- ur oft reynzt erfitt að draga höfuðatriðin í land. Ýmsum þessara rithöfunda hættir til að sjóða tíu súpur af einum kjötbita. En þá er komið að þeirri spurningu, hvort ekki sé hér um afturför að ræða. Á þennan hátt voru hvorki ís- lendingasögurnar né þjóðsög- urnar skrifaðar. Þar er yfirleitt ekkert orð of eða van. Er mönnum að verða um megn að birta skoðanir sínar í stuttu, en skýru máli? Langhundarit- gerðir verða meira og minna leiðinlegar, og ná síður en svo tilgangi sínum. 2. Ég hef ávallt talið það sem sjálfsagðan hlut, að Samvinn- unni bæri aö vera „sverð og skjöldur" samvinnumanna og starfsemi þeirra, reka erindi þeirra i sókn og vörn. En í því efni sjást fá sverð á lofti, ef litið er yfir síður Samvinnunn- ar hin síðari ár. Skilmerkileg- ustu greinar á þeim vettvangi tel ég vera „Goðsögnin um einkaframtakið" eftir ritstjór- ann og „Unga fólkið og sam- vinnuhreyfingin“ eftir Baldur Óskarsson. Vel mættu fleiri slíkar fara á eftir. Ef til vill megum við eiga von á að fá á næstunni eitt hefti Samvinnunnar, sem að- allega væri helgað samvinnu- málum. Það væri ekki úr vegi, enda ekkert hégómamál. Sam- vinna og samhjálp er meira virði en margur gerir sér að fullu grein fyrir. Og er ekki einmitt brýn nauðsyn að opna augu almennings fyrir þessari staðreynd? 3. Um ljóðin, sem birtast í flestum heftunum, er bezt fyrir „aldamótamann" að tala sem fæst. Vel kann að vera, að í þeim felist einhver list og speki. En þar sýnist ýmsum, að stundum sé þar varla bitastætt. En framar öllu öðru einkenn- ast flest þessara núljóða af þróttleysi, skorti á karl- mennsku. Þar ríða engar „hetjur um héruð“ á Pegasusi. Þar fer enginn Grímur eða Bjarni. Og hvað er um prósaljóðin að segja? Ég held, að þeim fylgi aðeins pappírseyðsla. 4. „Þrjár sögur“ í 3. hefti þ. á. hljóta að vissu leyti að telj- ast utan siðgæðismarka. Þar fyrirfinnast orð, sem ekki er hægt að vitna til sökum þess, að þau eru ekki prenthæf. — Á einum þessara höfunda „vit- um við engin deili,“ segir rit- stjórinn. Svo hefði bezt farið um þá alla. 5. Þá eru það „Rellurnar" hans Flosa. Allar horfur eru á því, að úr honum eigi að gera rithöfund. En það tel ég illa farið vegna hans sjálfs. En með því að úthluta honum vlrðulegan sess í hverju hefti og láta hann dansa þar á flug- hálum og glansandi pappír, þá er hann víst farinn að trúa því sjálfur, að hann sé orðinn rit- höfundur. Og það er meinið. — Þegar hann fyrst komst á snoðir um þessa hæfileika, má hugsa sér, að hann hafi glápt út í loftið og sagt við sjálfan sig: „Tja, ekki vissi ég þetta." Allt, sem hann skrifar, er hræringur af misheppnaðri fyndni og alvöru. En þó tekur út yfir allan þjófabálk, þegar hann þykist þess umkominn að /r Geriö Frigor frystikistu að foróa- búri fjölskyldunnar. HagstæÖ verð! Staðgreiðslu-afsláttur! Góðir greiðsluskilmálar! 2}/u££6a/u^é/a/t A/ RAFTÆKJADEILD HAFNARSTRÆTI 23, SÍMI 18395 J i» i' j n i STÆRÐIR 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.