Samvinnan - 01.08.1971, Qupperneq 14

Samvinnan - 01.08.1971, Qupperneq 14
verið lengi að breiðast út, en stundum virðast þær fara eins og logi yfir akur. Margt slíkra breytinga hefur ekki verið við- urkennt í ritmáli og skóla- kennslu, enda tók hreintungu- stefna 19. aldar upp þann hátt að berjast fyrir endurvakningu ýmsra beygingarmynda sem horfnar voru úr málinu að mestu eða öllu, og það jafnvel úr rituðu máli, hvað þá töluðu. Þessari viðleitni hefur verið haldið áfram síðan, þó að menn hafi gefizt upp á einstaka at- riðum. Sú lögboðna stafsetn- ing sem við höfum búið við síðustu 40 árin hefur ýtt undir þetta enn frekar, þar sem hún gekk lengra í forneskjuátt um sumt en áður hafði tíðkazt, og hefur auk þess verið kennd miklu fleirum og lengur vegna aukinnar skólagöngu almenn- ings. í mörgum tilvikum hefur þó reyndin orðið sú að meira en heillar aldar barátta í þessum efnum hefur borið heldur lítinn árangur að því er snertir talmálið. Fjöldi svonefndra „rangra“ beyginga er algengur í talmáli, þó að þeim sé skil- yrðislaust útrýmt i prentuðum bókum af harðvítugum próf- arkalesurum og kennarar striti við að leiðrétta þær í stilum nemenda. En menn gleyma því oftast að þessar svonefndu vill- ur eru oft búnar að vera mælt mál öldum saman og að minnsta kosti sumar hverjar tíðastar í prentuðu máli frá upphafi prentaldar fram á 19. öld. Alkunnugt dæmi er beyg- ing svonefndra ia-stofna, þ. e. orða eins og læknir, hellir o. s. frv. Beyging þessara orða breyttist í áföngum á tímabil- inu frá þvi á 15. öld fram á upphaf 17. aldar, en frá þvi á 17. öld og fram á þá 19. er forna beygingin að mestu horfin úr islenzku ritmáli, en þá kom hreintungustefnan og sögulegi lærdómurinn til skjalanna og gerði fornu beyginguna að rit- málsreglu og kennsluatriði. Nú skyldi maður ætla að tiltölu- lega einfalt mál væri að kippa slíku atriði í liðinn á nokkrum kynslóðum. En mér er til efs að menn hafi haft erindi sem erfiði. Að vísu hafa sumir skóiagengnir menn tekið upp eitthvað af hinum fornu beyg- ingarmyndum i tali sínu, a. m. k. í vissum orðum, en hreint ekki i öllum; engan hef ég t. d. heyrt tala um að kona væri komin á steypinn, ég held allir láti sig hafa það að segja að hún sé komin á steypirinn. Af- leiðingin af þessari viðleitni til afturhvarfs til eldri málmynda hefur því orðið sú að forna beygingin er ráðandi í ritmáli, og hefur aðeins valdið glund- roða í talmáli hjá nokkrum hópi manna, en verið áhrifa- laus um talmál alls almenn- ings. Mörg fleiri þvilík dæmi mætti nefna; i sumum tilvikum hafa menn gjörsamlega gefizt upp á fyrningartilraunum 19. aldar manna, svo sem því að taka upp hinar fornu endingar við- tengingarháttar i fleirtölu þá- tíðar: gætim, gætið, gæti o. s. frv., sem hafa þó sézt í riti fram á þessa öld; eða að vekja upp aftur greinarmun á tvítölu og fleirtölu i persónufornöfn- um, svo sem ýmsir höfundar reyndu á 19. öld. í öðrum til- vikum hafa menn látið breyt- ingar á beygingum afskipta- lausar, svo sem tilfærslur nafn- orða milli beygingaflokka, en þær breytingar ná að vísu að- eins til einstakra orða en ekki til beygingakerfisins í heild sinni; þær eru margar hverjar býsna gamlar, en sumar koma þó ekki fram fyrr en á síðustu tímum, enda eru af ýmsum orðum til tvímyndir í fleirtölu: greinir og greinar, síldir og síldar o. s. frv. í þessum til- vikum mætti eins beita þeirri kenningu sem annarstaðar er höfð að leiðarljósi, að eingöngu önnur myndin sé rétt sam- kvæmt fornu máli, og því sé hún ein réttilega nothæf í nú- tímamáli. Fyrningarstefnan, andstaðan gegn breytingum, er ekki og hefur aldrei verið sjálfri sér samkvæm, og í rauninni er það eðlilegt. Sterk og almenn mál- venja er afl sem sjaldnast verður sigrað með áhrifum rit- máls og skólakennslu. Mál- breyting sem var villa miðað við eldra málsstig, hættir að vera það þegar hún hefur sigr- að í mæltu máli, og þá kemur að þvi fyrr eða síðar að hún kemst inn í ritmál. Með þessu er vitanlega ekki sagt að rit- mál og skólakennsla séu áhrifa- laus á gang málbreytinga, sið- ur en svo. Áhrif þessara tveggja aðila hafa farið sívaxandi á síðustu árum, því meir sem al- mennari skólaganga og aukinn þáttur allskonar fjölmiðla hef- ur orðið mikilvægari í menn- ingarlifi þjóðarinnar. Þessi á- hrif sporna yfirleitt gegn breyt- ingum á málinu, a. m. k. að þvi er tekur til beygingakerfis þess og setningaskipunar. En eins og ég hef áður sagt, hefur sögulega sjónarmiðið verið að mestu einrátt fram að þessu í kennslu og ritmáli. En af því leiðir að sumar þær breyting- ar sem orðnar eru fyrir löngu í talmáli eru ekki viðurkennd- ar i rltmáli, og á þann hátt hefur skapazt misræmi milli talmáls og ritmáls: menn skrifa ekki sama mál og menn tala, nota jafnvel ekki að öllu leyti sama málkerfi. Misræmi talmáls og ritmáls Nú er mér auðvitað ljóst að ritmál er ekki og verður aldrei sama og talmál. Vitanlega er mælt mál undirstaða allrar málnotkunar, á þvi byggist allt ritað mál, þangað sækir allt bókmenntamál kjarna sinn og lífsþrótt. En i ritmáli koma einnig önnur atriði til greina: stílvenjur samtiðarinnar, fyrir- myndir í bókum, skólalærdóm- ur og málfræðireglur sem barð- ar hafa verið inn í fólk. Málið er miklu meira en orðin ein, þar koma ekki síður við sögu tengsl orðanna og sambönd, beygingar og setningaskipun, listrænir hæfileikar og mál- smekkur höfundar, allt það sem venjulega er kallað stíll. Hver sem eitthvað semur, þó ekki sé nema sendibréf, hagar oftast orðum sínum öðruvisi en hann mundi gera i mæltu máli. Vitandi eða óvitandi er sá sem skrifar háður einhverjum fyr- irmyndum um ritað mál. Auð- vitað er þetta misjafnlega mik- ið, en þó ævinlega nóg til þess að skipta máli um ákveðin at- riði, jafnvel þegar rithöfundar líkja eftir mæltu máli í sögum eða leikritum. En það er ekki þetta sem ég átti við þegar ég nefndi mis- ræmi milli talmáls og ritmáls, heldur hitt að ritmálið varð- veitir að vissu marki eldra málsstig, heldur í orðmyndir og setningafræðileg atriði sem eru ekki lengur notuð i mæltu máli. Vitanlega getur þetta átt rétt á sér í vissu samhengi, vissum stíl, en sem almenn regla leiðir það til vandamála, sem verða því erfiðari viðfangs sem and- staðan gegn breytingum er víð- tækari. Þegar svo er komið er tvennt til: annaðhvort lagast talmálið smátt og smátt eftir ritmálinu, eða þá að talmálið fer sínar eigin götur, heldur fast við þær breytingar sem orðnar eru, bætir jafnvel við þær nýjum frávikum, svo að bilið milli þess og ritmálsins helzt eða jafnvel fer breikk- andi. í fyrra tilvikinu er hætt við að aðlögun talmálsins að ritmálinu verði ekki nema að nokkru leyti eða nái ekki til nema nokkurs hluta þjóðarinn- ar; slík þróun getur stuðlað að því að munur verði á málfari vissra þjóðfélagshópa, jafnvel að menn verði með nokkrum hætti dæmdir félagslega eftir málfari sínu; um slíkt eru næg dæmi með öðrum þjóðum, en hingað til höfum við íslending- ar haft lítið af því að segja. í síðara tilvikinu halda menn á- fram að segja eitt og skrifa annað, og það hafa menn raunar lengi gert hér á landi, engu síður en annarstaðar. Vit- anlega síast smátt og smátt viss atriði úr talmáli inn i ritmál, menn gefast upp á að skrifa það sem enginn lætur út úr sér, og hætta að kveinka sér við að setja það á blað sem allir segja. Sé ritmál orðið verulega frá- bruðið talmáli kemur að því að rithöfundar sprengja af sér fjötrana, láta gamlar mál- fræðireglur lönd og leið, fara að skrifa eins og þeim er eðli- legast, hvað sem skólareglur segja. Þeir taka sem sé mið af samtíðarmáli, nota það mál- kerfi sem liggur að baki hins mælta máls samtímans. En vitaskuld munu þá aðrir halda áfram að skrifa það ritmál sem þeir hafa alizt upp við, en eiga þá á hættu að daga uppi, missa sambandi’5 við yngstu kynslóð- ina. Þetta er sú hætta sem stafar af of miklum einstrengings- hætti i málvöndun og reglu- strekkingi í málfræðikennslu, af því að horfa um of aftur á bak en of lítið til samtíðarmáls. Að einblína á eldri fyrirmynd- ir sem voru ágætar á sínum tíma skapar ekki lifandi rit- mál, heldur býður þeirri hættu heim að málið verði stirðnað og dautt, skorti þann lifsanda sem samtíðarmálið eitt getur blásið í ritmál. Með þessu á ég ekki við það eitt sem ég hef einkum rætt um hér á undan, breytingar á formkerfi málsins, heldur engu síður við þá hlið tungunnar sem snýr að sjálfum orðaforð- anum. íslenzk tunga hefur þá sérstöðu að hafa aðgang að orðaforða liðinna alda allt frá upphafi ritaðs máls á íslandi, orðaforða sem er að langmestu leyti skiljanlegur almenningi nú á dögum. Þetta órofna sam- hengi í íslenzkri tungu og ís- lenzkum bókmenntum frá upp- hafi vega er einn sterkasti þátturinn í því sem við erum vanir að kalla íslenzka menn- ingu, og það er um leið grund- völlur hreintungustefnunnar og sterkustu röksemdirnar fyr- ir henni. Ástæðan til þessa er framar öllu sú að tungumál er þjóðfélagslegt fyrirbæri. Mælt mál er ævinlega háð þvi fólki sem notar það, áhugamálum þess og viðfangsefnum, mótast 14
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.