Samvinnan - 01.08.1971, Side 39

Samvinnan - 01.08.1971, Side 39
sitt í kröfuhörðu og síbreytilegu samfé- lagi. Margt hefur því á seinni árum bent til að saga heimilisins væri á enda eða sú samfélagseining væri í engu samræmi við breyttar aðstæður og ólík skilyrði. — En einhvern veginn hefur samt stað- reyndin verið sú, að mönnum hefur þótt mikil eftirsjá að heimilinu sem sjálf- stæðri stofnun og þeim möguleika, sem það skapaði til raunhæfrar og eðlilegrar fjölskyldumyndunar. Hugmynd hinnar ævagömlu heildar, sem sagt er að sjálft þrenningarhugtak trúarbragðanna grundvallist á, hugmyndin um föður, móður og barn og þann reit, sem geri þeirri heild mögulegt að njóta sín, skapa einingu og öðlast fyllingu, sú hugmynd hefur engan veginn horfið eða ljómi hennar minnkað. Hitt er ljóst, að það þrönga, einstrengingslega og takmarkaða heimilisform, sem skapazt hefur í borga- samfélögum Vesturlanda til þessa, getur á mjög ófullkominn hátt gegnt því hlut- verki sem því er ætlað. Margt bendir og til þess að heimilum Vesturlanda hafi í verulegum atriðum mistekizt, og til hinna smáu og frá uppeldislegu og mótunar- legu sjónarmiði séð fátæku og fátæklegu eininga má rekja mörg þau mistök og margs konar vanrækslu, sem komið hafa hart niður á einstaklingum og heild- um. — Það er því að vonum að sjálf heimilishugmyndin hefur verið mjög í sviðsljósinu á síðustu árum og fáar hug- myndir meira ræddar. Hafa eins og að líkum lætur skoðanir manna verið æði skiptar. Til eru þeir, sem álíta, að dagar heimilisins sem sjálfstæðrar stofnunar séu þegar taldir og sú afskræmismynd heimilis, sem víðast hvar blasir við á Vesturlöndum, eigi ekki langt eftir að hverfa með öllu af sjónarsviðinu. Muni þá renna upp nýtt skeið í sögu mann- kyns, án heimila, án hinna gömlu föður- og móðurhugmynda, en börn hljóta upp- eldi að verulegu leyti á stofnunum, þar sem sérhæft fólk tryggir að þörfum þeirra líkamlegum og andlegum verði fullnægt og séð verði um að leysa hæfileika þeirra úr læðingi. — Aðrir hafna þessum skoð- unum á þeim forsendum ekki sízt að þær brjóti í verulegum atriðum í bága við mannlegt eðli og komi þvert á eðlilegar hneigðir manna, hvatir og náttúr- legt og upprunalegt tilfinningalíf. Virðist þeim hinum sömu einsýnt að heimilis- stofnunin eigi rætur að rekja til líffræði- legra forsendna, og verði ekki fram hjá þeim gengið án þess að valda mannkyn- inu miklum skaða, trufla tilfinninga- og hvatalíf og auka enn á erfiðleika manna til aðlögunar, en ræna þá heilladrýgsta þættinum í hamingju og lífsfyllingu. Þeim sem þannig hugsa virðist augljóst að gera beri tilraunir með nýtt heimilis- og fjölskylduform. Það form beri að miða við nýjar aðstæður þéttbýlisins og ný viðhorf varðandi stöðu kynjanna. Af þess- um rótum eru runnar tilraunirnar mörgu á Vesturlöndum með myndun stórheim- ila og stórfjölskyldna, þar sem hópur ein- staklinga og margar smáfjölskyldur taka sig saman og koma á nánu samstarfi og samlífi, sem veitir möguleika verkaskipt- ingar á heimilinu og margvíslega fjölbreytni í sambandi við félagslega mótun, einnlg uppeldi. Viðurkenna verð- ur að hinar nýju tilraunir hafa margar hverjar verið gerðar meira af kappi en forsjá, og nýjungagirni og sérvizka af ýmsu tagi sett um of mark sitt á mótun þeirra. Hinu verður þó naumast móti mælt, að tilraunirnar eru eðlileg félagsleg viðbrögð til að koma í veg fyrir að sá menningarlegi vettvangur, sem heimilið allt frá upphafi hefur verið, hverfi og skilji eftir opna und, sem haft geti ófyrir- sjáanlegar afleiðingar fyrir framtið mannkynsins. Manngerðir Það síðasta sem gerð verður stuttlega grein fyrir í þessum inngangsþætti að mati á stöðu samvinnusamtakanna árið 2000 sem félagsmálahreyfingar og menn- ingarstefnu snertir sjálfa manngerðina. Eru það almennar hugleiðingar er lúta að því hversu maðurinn kann að hafa breytzt í aldanna rás eftir því sem ytri og innri aðstæður hafa orkað á hann. — Greinargerð sú sem hér um ræðir gæti að sjálfsögðu verið með ýmsu móti. Hún gæti verið félagsfræðileg og þá t. d. grund- vallazt á skiptingu þjóðfélagsfræðingsins Davids Riesmans í hinar þrjár mann- gerðir, sem hann telur að ein hafi tekið við af annarri í sögu Vesturlanda. Þá skiptingu ræðir Riesman í bók sinni The Lonely Crowd, Hópurinn einmana. Manngerðirnar þrjár eru að dómi Ries- mans: Elzt er mannge-ðin sem stjórn- ast af erfðavenjum og lætur þannig forn- ar hugmyndir um lífsstíl og hegðun móta ævi sína. Síðan sá dagsins ljós mann- gerðin sem stjó'nast af innri siðaboðum, trú og hugsjónum, og leggur því engan veginn sömu áherzlu á hið ytra, heldur beinist áhugi hennar öðru fremur að því innra, en samkvæmni og siðræn hugðar- efni verða þyngst á metum. Loks hefur birzt sú manngerð, sem orðið hefur ríkj- andi meira og meira á síðustu árum, er lætur stjórnast af hinu ytra, sveiflum almenningsálitsins, áróðri fjölmiðlanna og þunga auglýsingatækninnar. — Grein- argerðin gæti líka orðið sálfræðileg og þá t. d. byggzt á kenningum geðlæknisins Carls Gustavs Jungs, er skiptir mönnum fyrst i tvær aðalheildir, innhverfa menn og úthverfa, en síðan hvorri aðalheild- inni fyrir sig í fjórar undirheildir. Miðar Jung þá skiptingu við fjóra aðalþætti vitundarlífs manna, sem hann telur að séu rikjandi, einn hjá hverjum einstakl- ingi. Þeir aðalþættir eru: hugsun, think- ing; innlifun, feeling; tilfinning, sensati- on; og innsæi, intuition. — Fyrir mér vakir þó annað, er ég vil benda á forsendur fyrir nýrri félagslegri og menningarlegri þróun, sem ég tel á næsta leiti og eigi einnig rætur að rekja til hugmynda um manngerðir og þá sér í lagi til nýrrar kviku, sem að baki þeim hugmyndum býr. — Það er kunnara en frá þurfi að segja, að sú þróun mannverunnar, sem við höf- um heimildir um og okkur eru tiltækar sannanir fyrir, hófst með tilkomu þess afbrigðis mennskrar lífveru, sem nefnd hefur verið homo sapiens, hinn vitiborni maður. Þvi er oft haldið fram, að þrennt hafi komið fram við hin sérstæðu þátta- skil og megi til þess rekja alla síðari þró- un mannverunnar á hvaða sviði sem vera skal. Það þrennt sem sérstætt var fyrir homo sapiens er: hagnýting eldsins, hæfileiki tungumálsins og loks skynjun hins heilaga, sem leiddi til trúarbragð- anna. — Hitt er engu síður ljóst, að hinn vitiborni maður homo sapiens hefur breytzt mikillega. Margt hefur orsakað þær breytingar eða stuðlað að því að kalla fram mismunandi eiginleika, vakið frábrugðna hæfni og hæfileika. — Þann- ig varð maðurinn að meðvitaðri félags- veru, zoon politikon eins og Platon kallaði hann, við það að auka samskipti sín o| t’-eysta ríki og stjórnskipan. — En mann- ve:an tók einnig að auðga líf sitt á ann- an hátt. Hún gerði hið leikræna, hið dramatíska að áhrifamiklum þætti, ef til vill áhrifamesta þætti tilveru sinnar. Á þann hátt þróaðist sú mannvera, sem hollenzki sagnfræðingurinn Johan Hui- zinga nefndi homo ludens, hinn leik- ræni maður, sem leitaðist við að gera all- ar athafnir sínar, hverju nafni sem nefnd- ust, að leik til að finna útrás tilfinning- um sínum og dáðum. — Sérstætt afbrigði í hinni mennsku þróun er svo homo oeco- nomicus, hinn hagræni maður, sem verið hefur fyrirferðarmikill á síðustu öld og reynt hefur að túlka alla tilveru sína með hagrænum hugtökum og leiða alla mögu- leika út frá efnahags- og atvinnuskipan. ■— Á allra síðustu árum hefur svo komið fram kenningin um að raunverulega bæri að skipta homo sapiens niður í þrjá ólika flokka manngerða. í einum flokknum væru athafna- og framkvæmdamennirn- ir. Þann flokk mætti kenna við homo faber, verkmennið. Þessari manngerð væri rikast í huga að láta verulega að sér kveða í ytri umsvifum. — í öðrum flokkn- um væru svo hinir tilfinningaríku, menn samúðar og samskipta. Flokkinn mætti kenna við homo amans, hinn elskandi mann, er þætti mest um vert að auðga lífið hið innra með auknum tengslum og persónulegum kynnum. í þriðja flokkn- um væru svo menn næmleika og fórnar. Þá bæri að nefna menn harmsins, homo patiens, þar sem þeir legðu sérstaka á- herzlu á að skynja veilur, veikleika og harm mannkynsins til þess að auðveldara væri að bæta úr og færa í lag. Hver flokk- urinn um sig hefði mikilvægu hlutverki að gegna, en æskilegt væri að gera sér ljóst hin ólíku verkefni og hversu þau gerðu kröfur til frábrugðinna vinnu- bragða og mismunandi afstöðu til verkefna. — Það eru vafalaust hugrenn- ingar af þessu tagi, sem leitt hafa til hinnar miklu kviku, er nú verður vart á Vesturlöndum, að senn hljóti sá tími að renna upp, þegar fram komi homo novus, hinn nýi maður. Það er einmitt í hug- leiðingunum um hinn nýja mann að araumarnir um algerlega frábrugðnar íe- lagslegar og menningarlegar forsendur birtast. Þær forsendur hljóta að svo miklu leyti sem þær grundvallast á end- urmati og hugboði um framtíðina að vera hin æskilegasta viðmiðun, þegar gera skal grein fyrir hlut og hlutverki samvinnu- hreyfingarinnar árið 2000. + 39

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.