Samvinnan - 01.08.1971, Page 54

Samvinnan - 01.08.1971, Page 54
Gunnarr Runólfr: HarJíssrsaga Hálfdauði hermaðurinn stundi uppúr sér hvar óvinurinn hafði sézt. Varla hafði hann sleppt orðinu, þegar leið yfir hann. Meðvit- undarlaus og helsærður var hann fluttur uppá sjúkrahús, þarsem gerðar verða tilraunir til að dæla í hann nýju lífi af kúti og settur í hann nýr gerviheili. Strákurinn Nonni settist uppí vígvélina og ók heim með herfang sitt, sem sigurvegara sæmir. Hann sagði pabba strax frá þessu. Pabbi fórnaði höndum og bað helgan for- seta verndara að hjálpa sér, amk varaforset- ann, ef hinn væri mjög önnum kafinn. — Þetta er ekkert gamanmál. Hér er um alvöru að ræða. Þú hefur, sonur minn, gert þig sek- an um svívirðilegan glæp; nærþví landráð. Drepið velgerðarmann og verndara þjóðar- innar. Þetta er glæpur glæpanna. Þú, sonur minn, sem ætlaðir að drepa óvini okkar og þeirra, ert nú orðinn manndrápari! En pabbi, sagði Nonni: þeir eru ekki eins góðir og við héldum. Þeir geta ekki vernd- að okkur; við þurfum ekki. . . . Þegiðu! og farðu útí sandkassa og leiktu þér. Sjálfur ætlaði hann að skila vígvélinni og reyna að bæta fyrir brot sonar sins. En ekki komst hann lengra af stað en í skóna. Að húsinu komu menn. Þeir voru úr lögreglu hersins. Þeir spurðu um Nonna; sögðust eiga að hegna fyrir glæp, jafnvel landráð. Pabbi sagði ekkert, en Nonni spurði hvort hann ætti að drepa þessa líka. Pabbi var sem festur á kross. Honum hafði mistekizt; afkvæmi hans skrímsli í manns- mynd; voru þetta tár á vanga hans? Nei, Nonni minn, þeir vita hvað þeir eiga að gera. OG þeir vissu það. Allt var búið. Landhreinsun lokið. Þeir fóru burtu. Uppivið girðinguna var annar strákur að leika sér. Hann hætti að leika og horfði á stæltar raðir hermanna ganga frá brennandi húsi vinar síns. Svo hljóp hann heim að segja mömmu og pabba hvað góðu mennirnir höfðu gert; land- hreinsað næsta hús. Pabbi hans og mamma sendu fingurkoss til hermannanna og lofuðu forseta þeirra. Pabbi notaði tækifærið og varaði son sinn við óskynsamlegu athæfi. Láttu þetta viti verða þér til varnaðar, sagði hann og gekk inní hús- ið, sem herinn leigði honum á jörðinni, sem afi hans hafði átt einusinni. Allt þetta gerðist á einum fögrum sunnu- degi. Hvað ætli gerast muni í vikunni á eftir? # á undanförnum árum hef ég fundið æ ríkari hvöt hjá mér til að setjast á klósettsetuna I þunglyndari þönkum en á mínum yngri árum. oft tók ég mig til & hafði nærbuxnaskipti þar (hér er átt við klósettið) & þegar var raf- magnslaust tók ég stundum feil á mínum & buxunum hennar Siggu en ég var giftur henni þangað til ég kynntist Pétri. nú erum við Pétur giftir & eigum saman 3 börn sem öll eru uppkomin. eftirfarandi samtal átti sár stað milli okkar í svefnherbergi hótel Skjaldbreið þann 8. april 1949. Pétur: hvað er klukkan ég: vantar kortér f Pétur: kortér í hvað ég: kortér í tólf Pétur: helvíti er hún orðin margt ég: já (til athugunar mætti koma að setja þetta á svið með tilheyrandi kviðstunum & effektum) einu sinni fórum við saman á bíó & sáum myndina „haust í miðborginni" starring fiosi- ólafssonrúrikharaldssonhöskuldurskagfjörðguð- rúnásmundsdóttirandguðlaugurrósinkranzashr- eggviðrr. þetta sumar bjuggum við á Ás- vallagötunni i Iftilli íbúð sem við leigðum fyrir 1000 kr. pr. mánuði fyrir utan skemmtana- skatt. þá var bingóið ekki komið til sögunnar. eitt kvöldið tefldum við skák sem síðar birtist í TÍMANUM & hef ég með leyfi ritstjóra fengið rétt til að birta hana hér: hvítt: Pétur Oddnýjarson svart: Sighvatur O’Brian 1. e4 h6 2. e5 e6 3. Rc3 Rc6 4. b4 De7 5. b5 Dd8 6. a4 Rxh6 7. Df3 g6 8. Bc4 Rd4 9. Dh3 Bg7 10. b6 Rf3skák 11. Ke2 Dh4 JAFNTEFLI eftir þetta fluttum við af Ásvallagötunni & tók- um okkur á leigu kvistherbergi á Vesturgötu enda börnin öll komin á legg & það elzta yfir- skúringakona hjá sambandinu. nótt eina þeg- ar við vorum lagztir heyrðum við eitthvert dul- arfullt þrusk fyrir utan herbergið. ég þorði ekki annað en að fara framúr & aðgæta hvað þetta gæti verið. kom þá í Ijós að þetta var ungur maður & var hann að leita að einhverri Ruth Johnson sem átti að eiga heima í þessu herbergi en ég sagði auðvitað eins & var að hérna byggi engin Ruth Johnson. kurteisi er mér í blóð borin enda hef ég oft fengið lof í lófa frá ýmsum mektarmönnum Pétur hefur gerzt grunsamlega hneigður til kvenna uppá síðkastið. eitt sinn er ég kom þreyttur heim úr blaðburðinum varð ég þess áskynja að eitthvað var öðruvísi en það átti að vera. Pétur var háttaður & kominn uppí bæli & þegar ég hafði snarað mér úr flíkun- um & ætlaði að skella mér uppí til hans var mér meinaður aðgangur. Þá varð mér það Ijóst hvað var að gerast............. reif Nú verður gjört örstutt hlé á lestrinum. 2. kafli 84

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.