Samvinnan - 01.08.1971, Side 65
er kannski ein einstök veggja-
lús í þessu húsi.
— Ein einstök! hrópaði
Gorkí forviða. Nei, þær eru
svo sannarlega ekki einstak-
ar — og þær eru meira að
segja giftar allar saman og
eiga þar á ofan risastórar fjöl-
skyldur.
Horace Greeley (1811—
1872), bandarískur stjórnmála-
leiðtogi og blaðamaður, varð
eitt sinn fyrir því, að upp-
blásinn þingmaður kom til
haus og sagði:
— Eg er sjálfskapaður mað-
ur.
Greeley svaraði:
— Já, herra minn, og það
leysir almættið undan þungri
ábyrgð.
Graharn Greene (f. 1904),
hinn heimskunni brezki skáld-
sagnahöfundur, snæddi ein-
liverju sinni kvöldverð með
konu sinni í litlu grísku veit-
ingahúsi í Lundúnahverfinu
Bloomsbury. Frúin tók eftir
því hvað eftir annað meðan
á máltíðinni stóð, að maður
hennar geispaði án þess að
gera noklcra tilraun til að
leyna því. Þar kom að henni
fannst nóg um og gat ekki
stillt sig um að segja:
— Graham, það er nú ekki
fallegt af þér að sýna opin-
berlega, að þér leiðist í návist
konu þinnar.
— En veiztu ekki, hjartað
mitt, að skrifað stendur, að
maður og kona eru eitt?
— Jú, en hvað kemur það
framkomu þinni hér við?
— Aha, einmitt þegar mað-
ur er einn, getur vel komið
fyrir, að manni leiðist.
Giulia Grisi (1811—1869),
hin heimskunna og gullfallega
ítalska söngkona, var gift hin-
um fræga tenórsöngvara
Mario.
Einn dag þegar hún var á
skemmtigöngu í St. Péturs-
borg ásamt dætrum sínum,
hitti hún keisarann, sem
þekkti hina vinsælu söngkonu
mætavel. Dæturnar voru
kynntar fyrir honum, og hann
sagði:
— Tvær dætur Grisi; þær
hljóta þá að vera grísetburl
— Nei, yðar hátign, sagði
söngkonan, þær eru nnaríón-
ettur (leikbrúður).
Lucien Guitry (1860—1925),
hinn ræmdi franski leikari og
leikhúsfrömuður, var eitt sinn
staddur á veitingahúsi í
Bordeaux, þar sem þjónn færði
honum bolla með kjötsúpu.
— Viljið þér ekki fara aft-
ur fram með kjötsúpuna, sagði
Guitry stranglega, hún er ekki
nógu heit.
Nokkrum mínútum seinna
kom þjónninn með annan
bolla.
— Hún er enn ekki nógu
heit, sagði Guitry af full-
komnu miskunnarleysi.
En nú missti þjónninn þol-
inmæðina.
— Hvernig getið þér sagt
til um það, herra minn, úr því
þér hafið ekki einu sinni
bragðað á henni?
— Rétt er það, sagði Guitry,
en á meðan þér getið haft
fingurinn niðri í súpunni, er
hún ekki nógu heit.
Kunnur rithöfundur sendi
Guitry liandrit að nýjasta
leikhúsverki sínu og skrifaði á
hjálagðan miða:
„Kæri vinur, ég vcðja gull-
peningi um, að þér lesið ekki
leikritið.“
Guitry endursendi handritið
ásamt ávísun uppá 20 franka
og bréfi sem hafði að geyma
fjögur orð:
„Kæri vinur, þér unnuð.“
«***
ÍEB9ASUIFSTBFM SIINNA
BANKASTRSTI7 SlMAR 16400 12070 26555
KAKAO
HANDA
KRÖKKUNUM
05