Samvinnan - 01.09.1974, Qupperneq 24
Hvernig er hægt að auka
þátttöku féiagsmanna?
Gunnlaugur P. Kristinsson, fræðslufulltrúi
KEA á Akureyri.
Hæfileikinn til að tjá sig
hefur sljóvgazt
Nálega 40 þúsund manns eru nú í samvinnufélögunum hér á landi.
En taka þeir nógu mikinn þátt í samvinnustarfinu? í þetta skipti
lýsa þrír samvinnumenn viðhorfi sínu til þessa máls. Spurningin,
sem við lögðum fyrir þá, hljóðar svo: „Hvert er álit þitt á hinni
félagslegu hlið samvinnuhreyfingarinnar nú á dögum, og á hvern
hátt mœtti auka þátttöku félagsmanna í samvinnustarfinu?“
Mér finnst, að í dag sé hinni félagslegu
hlið Iítið sinnt umfram það, sem sam-
vinnufélagsformið beinlínis kveður á um,
svo sem deildarfundi og aðalfundi félag-
anna. Bein félagsleg störf þar umfram
eru því miður harla takmörkuð og óreglu-
leg, t. d. önnur fundahöld og útgáfa upp-
lýsinga- og félagsblaðs. Því ber sérstak-
lega að fagna, að mikill áhugi virðist nú
vaknaður meðal samvinnumanna um að
stórauka og efla hinn félagslega þátt
starfsins.
Öll félög, að hvaða málefnum þau svo
vinna, kvarta nú sáran undan félags-
deyfð manna, en hún á sér margar á-
stæður, sem flestar flokkast undir „breyt-
ingar á þjóðfélagsháttum". En einmitt
þessar breytingar knýja á eflingu hinn-
ar félagslegu hliðar samvinnustarfsins,
sem í raun er undirstaðan.
Eina stærstu hindrun alls félags-
legs starfs álít ég eiga rót sína að rekja
til tjáningarörðugleika manna, eldri sem
yngri, og ókunnugleika á almennum
fundareglum. Fjölmiðlunartækni nú-
timans á hér mikla sök, fleiri og fleiri
verða eingöngu móttakendur, en sendi-
tæknin, tjáningarhæfileikinn, sljóvgast.
Hér þurfa skólarnir að koma til skjal-
anna. Samning ritgerða er þar sjálfsagt
nauðsyn, en að kenna og æfa alla skóla-
nemendur í að setja munnlega fram
skoðanir sínar, tjá sig í ræðuformi, álit
ég ennþá meiri nauðsyn, því að til þeirrar
kunnáttu og hæfni þurfa menn mun oft-
ar að grípa. Svo lýðræðislegur félags-
skapur sem samvinnufélögin ættu að
leggja á þetta mikla áherzlu, því að auk-
in og almenn hæfni manna á þessu sviði
mundi efla þátttöku félagsmanna í starf-
semi samvinnufélaganna, styrkja þau og
lýðræðið í landinu.
Starfsemi leshringa er áreiðanlega
mikilvæg í þessu sambandi, en þar vinna
um 10 manna hópar sameiginlega að
lausn verkefna eða skiptist á skoðunum
um ákveðið náms- eða hugðarefni. Und-
24