Samvinnan - 01.08.1981, Síða 21
Erlendur Einarsson
stjórnarformaður
samvinnutrygg-
ingafélaganna flyt-
ur skýrslu stjórnar
fyrir árið 1980. Að-
alfundurinn var að
þessu sinni haldinn
i nýjum fundarsal á
fimmtu hæð í Ar-
múla 3.
Tryggingafélög
samvinnumanna:
Aðalfiindur í nýjum húsakynnum
Aðalfundir Samvinnu-
trygginga g. t., Líf-
tryggingafélagsins
Andvöku og Endurtrygg-
inga hf. voru haldnir í
Reykjavík 23. júní. Fund-
irnir voru haldnir í nýjum
fundarsal á 5. hæð í Ármúla
3 sem þar með var notaður
í fyrsta sinn. Fundarstjóri
var Jón Helgason alþm. í
Seglbúðum. Erlendur Ein-
arsson stjómarformaður
flutti skýrslu stjómar fyrir
árið 1980, Hallgrimur Sig-
urðsson fór yfir og skýrði
reikninga Samvinnutrygg-
inga, og Jón Rafn Guð-
mundsson greindi frá af-
komu Andvöku og Endur-
tryggingaféiagsins.
• TAP Á BÍLA-
TRYGGINGUM
Iðgjaldatekjur Samvinnu-
trygginga jukust um 49,9%
og urðu 7.352,3 milj. gkr.
Tjón hækkuðu hins vegar
um 69,4%, og tjónaprósenta
félagsins varð 75,9%. Hagn-
aður á rekstrarreikningi
varð tæpar 2,2 milj. en eigið
fé, að viðbættum duldum
sjóðum, jókst um 60,7% og
nam í árslokin 3. 573,1 milj.
Hagnaður varð af bruna-,
sjó-, ábyrgðar- og slysa-
tryggingum, en á bifreiða-
og endurtryggingum varð
tap. Tapið á bilatryggingum
varð 192,4 milj., þar af 28,0
milj. á ábyrgðartryggingum,
99,3 milj. á kaskótrygging-
um og 80,7 milj. á fram-
rúðutryggingum.
Iðgjöld Andvöku jukust
um 46,3% og urðu 403,8 milj.
Iðgjöld Endurtryggingafé-
lagsins urðu 2.557,4 milj. og
hækkuðu milli ára um
99,1%. Samtals voru því ið-
gjaldatekjur allra félag-
anna þriggja 10.313,5 milj.
og jukust um 59,5%.
Fundarstjóri var Jón Helgason,
forseti Sameinaðs þings, sem
hér sést stýra fundi. Fremst
sjást Erlendur, Hallgrimur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Samvinnutrygginga, og Jón
Rafn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Andvöku og
Endurtryggingafélagsins.
• STYRKUR
TIL SJÁLFSBJARGAR
í tilefni af ári fatlaðra
var samþykkt að Samvinnu-
tryggingar legðu fram 75
þús. kr., og Andvaka 25 þús.
kr. eða samtals 100 þús. kr.
f stjórn félaganna eiga nú
sæti þeir Erlendur Einars-
son forstjóri, formaður, Val-
ur Arnþórsson kfstj., vara-
formaður, Ingólfur Ólafsson
kfstj., Ragnar Guðleifsson
kennari og Karvel Ög-
mundsson frvstj. Fulltrúi
starfsmanna i stjórninni er
Þórir E. Gunnarsson full-
trúi.
♦
21