Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Side 11
5
hópast til Reykjavíkur, meðal annars frá Höfn, og græða
hjer of fjár, þá er þar með fengin líkindasönnun fyrir
því, að Reykjavík verði að vera miðstöð og miðstjórn
íslenzku kaupfjelaganna. Hitt er annað mál, að á meðan
stríðið stendur, er kaupfjelögunum hagur í því, að full-
trúi þeirra hafi bækistöðu sína í Höfn, að því leyti sem
hann þarf að vera erlendis.
Nú skal vikið að því, hversvegna hinum veikari kaup-
fjelögum er eðlilegast að skipta við Reykjavík, ef þar er
heildsala. Pað er af því að þau þurfa að geta fengið lán
og vötubirgðir nœrri sjer. Viðskiptavelta þeirra er lítil,
samheldni fjelagsmanna ekki alltaf svo mikil, að þéir þori
að bindast gagnkvæmri ábyrgð og bankarnir stirðir við-
fangs með heppileg lán. Af þessu leiðir, að slík kaupfje-
lög falla í opna arma milliliðunum i Reykjavík. Stundum
fá þau vörubirgðir frá þeim, eptir því sem þau þurfa, en
mjög hækkaðar í verði, svo sem að líkindum ræður, eða
þá að milliliðurinn ábyrgist bankalán fyrir vöruupphæð-
inni og tekur tvöfalt gjald: fyrst sem umboðssali og síð-
an sem ábyrgðarmaður fyrir bankaláninu. En raunar hef-
ir þessi ábyrgð sumra umboðssalanna stundum reynzt
fánýt, þegar til þurfti að taka og hefir það orðið til að
minnka þennan óvana. Kaupfjelögin hafa eigi ósjaldan
komizt að þeirri niðurstöðu, að þau hafa orðið að borga
2 °/o í ábyrgðarlaun fyrir gersamlega ónýta liðveizlu. En
aðalatriðið er þetta: Kaupfjelögin geta ekki gengið fram
hjá heildsölunum, og sum verða að sæta afarkostum frá
þeirra hendi, eins og nú hagar til í landinu, en úr þessu
má bæta með fullkomnara skipulagi.
Samband kaupfjelaganna verður þar að hafa forgöng-
una. F*að verður að hafa flutt höfuðstöðvar sínar frá
Norðurlandi og Kaupmannahöfn til Reykjavíkur og búið
þar um sig, þegar styrjöldinni er lokið. Retta nýja heim-
ili sambandsins verður fyrst og fremst samvinnuheildsala,
sem hefir ætíð fyrirliggjandi vörubirgðir handa hinum
einstöku kaupfjelögum og er um leið aðalaðsetui yjir-