Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Síða 13

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Síða 13
7 lög í öllum landshlutum fjellust á að hlíta forgöngu hans. Hann hafði, fremur en nokkur annar einn maður, unnið að því að koma upp nýtizku kaupfjelagi í stað pöntunarfjelaganna gömlu, en einmitt kaupfjelagsformið hefir reynzt kaupmönnum skæðast í baráttunni um verzl- unina. Undir stjórn hans hafði vanmáttugt og áhrifalaust pöntunarfjelag á Akureyri orðið að öflugustu kaupfje- lagsverzlun, sem nokkurntíma hefir verið til hjer álandi. Og án þess aó útskýra nákvæmlega alla þá þætti, sem ollu þeirri miklu framför, vil eg benda á eitt dæmi. Hall- grímur Kristinsson rjeði mestu um það að lög Kaupfje- lags Eyfirðinga eru óvanalega ströng gagnvart formann- inum um allt sem að skuldum og óreiðu lýtur. Ekki ein- ungis er formanni bannað að skulda í fjelaginu, heldur verður hann að gjalda sekt i skuldtryggingarsjóð jyrir skuldir annara manna ífjelaginu. Allir sjá muninn á þessu fyrirkomulagi eða óánægju þeirri, sem hefir lamað ýms önnur samvinnufjelög: að leyfa stjórnendum að skulda, en heimta ýtrustu skilsemi af óbreyttum fjelagsmönnum. Áhrifin hafa einnig orðið ólík, sem við var að búast. Upp af illu sæði misrjettarins og óheilindanna hefir vax- ið sundrung og tortryggni í fjelögunum, með brotlegum forgöngumönnum, þar sem aptur á móti blómgun Kaup- fjelags Eyfirðinga stendur í nánu sambandi við siðgæði og strangar kröfur, sem formaðurinn gerði til sjálfs sín og sinna eptirmanna. Að öllu þessu athuguðu munu menn sjá, að ef hin einstöku samvinnufjelög ætla að ganga í hærra samband, til að geta betur unnið verk sinnar köllunar, þá er þar sjálfkjörinn til sá maðurinn til forustunnar, sem reynslan hefir sýnt, að hefir mesta og hamingjudrýgsta foringja- hæfilegleika. Og í landi, þar sem, eins og áður var á- drepið, að hvers-konar fjelagsskapur er nákvæm eptir- mynd forgöngumannanna — af því fjöldinn hefir enn eigi svo mikið skapandi afl, sem skyldi,—verður nauðsyn ó-

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.