Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Blaðsíða 20
14
upp í Reykjavík, um leið og heildsalan þar er sett á
stofn. Samhliða þessu mætti halda styttri námsskeið,
fyrir aðra menn, sem áhuga hefðu á samvinnumálum,
og láta fyrirlestrarmenn fara um landið og dreifa fræ-
kornum samvinnuhugsjónarinnar bæði yfir frjóa mold og
grýttan jarðveg.
Verkið er mikið og ekki nema rjett byrjað enn. Stjórn
sambandsfjelaganna þarf að flytjast til Reykjavíkur, og
efla þar til voldugrar heildsölu fyrir allt landið. Pá ganga
öll hin sundruðu fjelög í sambandið og öflugt kaupfje-
lag rís upp í Reykjavík. Undir umsjón forstjóra heild-
sölunnar er skóli fyrir starfsmenn samvinnufjelaganna og
hinir ungu menn, sem þar nema, bera með sjer eldinn
og áhugann út um byggðir og bæi hvarvetna á landinu.
Samhliða þessu heldur sambandsfjelagið uppi öflugu
tímariti og styður, á einn eða annan hátt, hæfilegamörg
og þekkt vikublöð, til að skýra og rjettlæta málstað sam-
vinnumanna. Með þessum og öðrum eðlilegum breyt-
ingum, í skipulagi samvinnumanna, mundi þess ekki
langt að bíða, að takmarkinu yrði náð, því takmarki: að
mestöll verzlun íslendinga verði i höndum satnvinnufje-
laganna.
Jónas fónsson
frá Hriflu.