Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Síða 22

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Síða 22
16 málastjórn *. Samvinnufjelög Dana hafa nú líka áunnið sjer það traust og álit, að engin rödd heyrist lengur, sem reynir að kasta skugga á starfsemi þeirra, jafnvel ekki í blaði kauphallarspekúlantanna, »Börsen«, sem þó lengi ofsótti fjelögin og gerði gabb að þeim. En varla var samvinnubankinn kominn á fastan fót, þegar samvinnumenn tóku að hugsa fyrir heilu kerfi af lánsstofnunum, um land allt, í sambandi og samvinnu við bankann eða sem nokkurskonar útbú frá honum. Vinna nú danskir bændur af kappi að þessu þarfa og friðsamlega samúðarstarfi, meðan styrjöldin æðir í öðr- um löndum. Ætlunin er sú, að stofna í hverri sveit eða hjeraði samvinnusjóði eða lánsstofnanir (Andels Kreditforeninger), sem annist um öll peningaviðskipti milli hinna smærri samvinnutjelaga út um sveitirnar, og milli þeirra og sam- vinnubankans. Aðferðin er þessi: Hver fjelagsmaður í samvinnufje- lögum hefir reikning við samvinnusjóð sinnar sveitar. Þar færast honum til tekna allar upphæðir fyrir seldar atvinnuafurðír hans í framleiðslufjelögunum, en til út- gjalda upphæðirnar af innkaupum hans í kaupfjelögun- um, og er það hlutverk sjóðanna að jafna þessar upp- hæðir, t. d. mánaðarlega eða optar; flytja fjeð milli hinna * Samband íslenzkra samvinnufjelaga, sem nú hefir komið á fót skrifstofu í Kaupmannahöfn undir forustu Hallgríms Kristinsson- ar, hefir leitað eptir föstu viðskiptasambandi og lánstrausti hjá samvinnubankanum danska. Hefir þeirri málaleitun verið mjög liðlega tekið af bankastjórninni, sem strax fór að leita sjer upp- Iýsinga um skipulag íslenzkra kaupfjelága; og þótt samningum um þetta sje skammt á veg komið, þá er nú svo komið, að bankinn veitir móttöku allstórum upphæðum fyrir seldar vörur S. í. S. og ávaxtar þær og greiðir svo út eptir ávísunum upp- hæðir fyrir keyptar vörur erlendis. Er ekki vonlaust að íslenzku kaupfjelögin, sem í sambandinu éru, geti náð hagfeldari og rýmri viðskiptakjörum hjá þessum danska banka, en við höfum átt að venjast. mf

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.