Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Side 24

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Side 24
Dýrtíð og vöruverðlag. I. Dýrtiðin. Um ekkert mun alþjóð manna jafntíðrætt nú á dögum sem heimsstyrjöldina miklu, sem yfir stendur, og dýrtið þá, sem styrjöldinni er samfara. Dýrtíð þessi hefir ákaf- lega mikil áhrif á daglegt líf og hagsæld allra stjetta, einnig meðal hinna svo kölluðu »hlutlausu« þjóða. þetta er einnig eðlilegt, þar sem hin vanalegu viðskipti þjóð- anna kippast svo snöggt og stórkostlega út úr gömlum farvegum og nýrra ráða og jafnvel bragða verður að leita til þess að geta haldið áfram nauðsyniegum og þoi- anlegum almennum viðskiptum. í tilefni af þessu er það raunar álitainál, hvort nokkur þjóð, sem veruleg viðskipti rekur á heimsmarkaðnum, er fullkoinlega »hlutlaus« í heimsstyrjöldinni, ekki einu sinni að okkur undanteknum, smælingjunum. En út í það efni skal eigi lengra farið á þessum stað. En hvað er svo dýrtíð? Þar eru ekki allir á eitt mál.sáttir með svarið, sízt hjer heima fyrir, þar sem viðskiptareynslan er eiginlega svo stutt og viðskiptin við umheiminn svo fábreytt, allt að síðustu tímum. Fyrir svo sem 80 árum gætti þess ekki tilfinnanlega hjá almenningi hjer á landi, hvort almenn dýrtíð var í umheiminum eða ekki. Pá bjargaðist landið mest megnis við sín eigin gæði, En nú er öldin önnur.

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.