Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Síða 25

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Síða 25
19 Almennt mun það talin dýrtíð, þegar almennar nauð- synjavörur óg hver annar varningur, sem menn hafa vanið sig á að fá til kaups hjá öðrum mönnum, stígur snögglega og stórfenglega að verði. Dýrtíð, að minnsta kosti á takmörkuðum vöruflokkum, getur stafað af ýmsum orsökum, svo sem uppskerubresti á ýmsum jarðargróða; stórkostlegum verkföllum meðal útlendra verkamanna; snöggum breytingum á ýmsum framleiðsluháttum; af ótta fyrir ófriði meðal einhverra þjóða og nú orðið eigi ósjaldan vegna stórgróðabralls eða stórfenglegra samtaka kaupsýslumanna. En flest af þessu nær vanalega ekki nema til sjerstakra greina viðskiptalífsins og á sjer sjaldan langan aldur. Pví er það að eins almenn og langvarandi dýrtíð sú sem nú stendur yfir, og sém nær til allra þjóða hjer í álfu og víðar, hefir aldrei gengið yfir, svo sögur fari af. Og aðalorsökin er heimsstyrjöldin mikla, sem aldrei fyr hefir átt sinn líka. Og í sambandi við hina eiginlegu styrjöld kemur sú hermálaaðferð, sem nú er viðhöfð á ýmsum sviðum utan við ófriðarsvæðin sjálf: að hindra sem verða má viðskipti við ófriðarríkin og í mörgum tilfellum milli hlutlausu þjóðanna, enda bein viðskipti milli sjerstakra ríkishluta, svo sem milli íslands og Danmerk- ur. Ef eigi hefði viljað svo heppilega til, síðast liðið sumar, að uppskera algengustu korntegunda varð með einna bezta móti, t. d. hveitiuppskeran í Norður-Americu, hefði dýrtíðin og neyð fátækrar alþýðu, nú í vetur, orð- ið enn meiri en raun er á. Gagnvart þeim dýrtíðarkippum, sem við höfum þekkt á liðnum tímum, hafa menn opt fundið nokkur lækn- andi ráð, en í þá átt reynist nú flest máttlítið, þó ýmis- legt hafi verið reynt með dálitlum árangri, eins og síðar mun verða vikið að. Af því, sem nú hefir lauslega verið drepið á, má ráða 2*

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.