Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Page 29

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Page 29
23 og þá einkum hjá þeim, sem sízt megna við slíku rönd að reisa. Og þessa vegna er dýrtíð jafnan talin þjóðaböl. Veruleg og langvarandi dýrtíð kemur jafnan hart nið- ur á þeim atvinnurekendum, sem eigi hafa til muna við annað að styðjast en peningaborganir fyrir störf sín, hvort sem eru óbreyttir verkamenn eða opinberir starfs- menn. Þessir flokkar fá miklu minna af nauðsynjavörum sínum fyrir hverja krónuna en áður var, en krónutal launanna hækkar má ske ekki, minnkar ef til vill í sum- um tilfellum, eða vinnu brestur með öllu. Pað er vana- lega miklum umsvifum bundið að færa til launahæð op- inberra starfsmanna, og launin laga sig því ekki eptir almennum verðlagsbreytingum, þó rjettlátast hefði verið að hafa þar verðlagsskrárgrundvöll tiltekinna almennra lífsnauðsynja fyrir mælikvarða. Laun verkamanna hækka að vfsu optast- nær í almennri dýrtíð, en ekki nándar nærri að sama skapi og almenna vöruverðið. Reynslan sýnir það, að minnsta kosti hjer á landi, að vinnulaun eru alltaf á eptir vöruverðlagi og framleiðslunotum, hvort sem þetta fer hækkandi eða lækkandi. * * * Til þess að jafna svolítið úr þeim feykilegu misfellum, sem nú verandi dýrtíð orsakar á högum almennings og reyna að koma svolítið í veg fyrir fádæmagróða ein- stakra manna, fjelaga og stjetta, en varna efnahagseyði- leggingu og sárri neyð fjölda annara manna, hafa flest- ar þjóðir á þessum ófriðarárum orðið að grípa til alveg óvanalegra úrræða með áhrifum og fyrirmælum ríkis- valdsins. Helztu og algengustu úrræðin eru þessi: Að banna útflutning úr ríkinu ájvissum tegundum mat- væla, sem menn almennt og daglega þurfa að nota, og styðja yfir höfuð þá stefnu að landið bjargist, betur en áður, við eigin gæði. Að draga að rikisheildinni allmikinn forða af þeim

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.