Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Side 38

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Side 38
32 án aðstoðar þeirra manna, sem hafa allt aðrar hagsmuna- hvatir en neytendur, — en þó auðvitað með aðstoð sjer- fræðislegrar þekkingar —, tekið í sínar eigin hendur, ekki að eins innkaup og að miklu leyti framleiðslu á nauðsynjum sínum, heldur einnig sölu á framleiðslu samstarfsins. Petta er takmark samvinnuhreifingarinnar, þó þetta tak- mark liggi má ske enn í töluverðri fjarlægð. En til þess að ná markinu verður öll starfsviðleitnin að hafa það fyrir augum og stefna að því. Pað bráðliggur ekki á því að ná markinu þegar í stað, og það þýðir ekkert að ætla sjer að hafa skrefin lengri en vöxtur líkamans leyfir. Fyrsta starfið, sem miðar sig við markið, er þá það, að gera alþýðu manna það skiljanlegt, að vegurinn til þess að endurbæta þau úreltu atriði, sem nefnd hafa verið og veita fjöldanum aptur meiri hagsæld og betri lífskjör, er sá, að menn snúi sjer alvarlega að samvinnu- fjelögunum, snúi sjer að samstarfinu, til þess að efla hagsmuni framleiðenda og neytenda. Á því ríður afar- mikið að menn skilji þetta rjettilega. Og í þessu augna- miði þarf það því að kóma glögglega í Ijós, fyrir allan almenning, hver þau gæði eru, sem ávinnast með því að taka þátt í þessu samstarfi, og að þau gæði geti menn eðlilega fengið í enn ríkulegri mælir, ef menn almennt snúa sjer að sama ætlunarverki. Það væri aptur þar á móti beinlínis að svikja málstað samvinnufjelaganna, ef stjórnendur þeirra, með tilliti til fyrnefndrar kröfu um verðlagslækkanir færu að kasta dularblæju yfir árangur samvinnustarfsins, gagnvart þeim mönnum, sem standa utan við .fjelögin. Pað verk væri alveg sama og sjálfsmorð, ef innkaupafjelögin færu eptir utan að komandi hvötum í því efni, að úthluta vörunum með svo lágu verðlagi, að enginn ágóði yrði í aðra hönd. F*á yrði ekki heldur neitt í afgangi til að efla varasjóðinn og með því væri fótunum kippt undan framtíð fjelaganna,

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.