Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Qupperneq 42

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Qupperneq 42
36 eptirfylgjandi grundvallaratriði sem órjíifanleg lögmáls- boðorð fyrir innkaupafjelag sitt: 1. Vöruúthlutun eptir dagverði. 2. Úthlutun ágóðans, til fjelagsmanna, eptir hlutfalli við vörukaup þeirra. 3. Hrein borgun við afgreiðslu vörunnar. Innkaupasamvinnufjelögin í Danmörku hafa beðið mik- ið tjón við það að syndga á móti grundvelli síðasta boðorðsins. Pess konar syndir hafa komið sumum fje- lögunum á kaldan klaka og skaðað öll þau fjelög, þar sem mikið hefir verið um lánveitingar. Lánveitingar veikja dönsku samvinnufjelögin og minnka árangur þeirra. En því síður þola fjelögin það að fleiri meginstoðum sam- vinnumálsins sje burtu kippt. Jeg gæti, að öðru leyti, komið fram með miklu fleiri ástæður fyrir því, að ekki megi víkja frá grundvallarat- riðinu: Úthlutun eptir dagverði. Og hver einstök af þeim ástæðum ætti að duga til að sýna það, að óheppi legt er að víkja frá reglunni. En þær ástæður hafa bæði verið bornar fram af stjórn samvinnufóðurkaupafjelag- anna og af ritstjóra samvinnublaðsins, og því vil jeg ekki vera að endurtaka þær. Severin Jörgensen. Eins og fyr er vikið að, kemur hjer það sama fram og ritað er um í Tímaritinu f. á., þó Severin Jörgensen taki eðlilega í strenginn af meiri skarpleik og þekkingu en ætlast má til af ritstjóra þessa tímarits. Málinu, um verð- lagsaðferð ýmsra kaupfjelaga okkar, verður haldið vak- andi í Tímaritinu framvegis, en þetta verður að nægja að sinni, eða má ske þangað til meðhaldsmenn gömlu verðlagsaðferðarinnar koma fram með sínar málsvarnir. 5. /. ----------------

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.