Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Side 47

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Side 47
41 sem tekur í eigin hendur (»cooperativt«) ýmsar starfs- greinar, sem utanflokksmenn höfðu áður haft með hönd- um, og stundum misbeitt þar herfilega aðstöðu sinni. í þessu efni eru þá hin sjerstöku samvinnufjelög tekin til fyrirmyndar. Frásagnir og skyringar um þess konar starf- semi flytur Tímaritið svo iðulega, að þar þarf eigi við að bæta í þessu sambandi. Að eins skal það tekið fram, að meðal jafnaðarmanna fær nú sú skoðun aukið fylgi, að hin frjálsa samvinnustefna muni eins fljótlega geta leitt að markmiðum þeirra, sem hin upphaflega »ríkis- jafnaðarstefna« og að minnsta kosti verði jafnaðarmenn að tileinka sjer margt af hugmyndum samvinnumanna og frainkvæma þær. Reynslan sje svo látin skera úr hvor stefnan verði ráðandi með tímanum, en trúlegast sje að hvor bæti aðra upp að ýmsu leyti, og báðar renni svo saman að lokum. * * * Það er auðsjeð að verkamannafjelögin, hjer á landi, eru nú á síðustu tírnum farin að stefna nokkuð til sömu áttar og erlendu fjelögin: setja markið hærra og fjölga verkefnum, fram yfir það, sem til var stofnað í byrjuninni. Flokkarnir eru byrjaðir á því að koma sínum skoðun- um og kröfum á framfæri með kjörnum fulltrúum í sveita- og bæjastjórnir. Og eptir næsta kosningatímabil til al- þingis má einnig vænta að þeir eigi sjerkosna fulltrúa á alþingi. Verklega samstarfið er einnig í undirbúningi. Innan skamms verður líklega stofnað kaupfjelag í Reykjavík af iðnaðarmönnum, hásetum og verkamönnum í bænum. En fyrsta framkvæmdarskrefið í þessa stefnu tekur verka- mannafjelagið á Akureyri, sem nýskeð hefir stofnað þar kaupfjelag, út af fyrir sig. í Hafnarfirði hefir að vísu ver- ið staríandi kaupfjelag nokkur ár, en það er fyrir bæinn í heild sinni en engin flokksstofnun. Verkamenn Akur- eyrar ríða því á vaðíð með samvinnufyrirtæki fyrir fjelag

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.