Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Qupperneq 48

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Qupperneq 48
42 sitt. Eiga þeir þökk skylda frá samherjum sínum og fleir- um. En vandi mikill hvílir og á þeim með fyrirtæki sitt. það þarf að verða til lofsverðrar eptirbreytni en ekki til fráfælingar, um lengri eða skemmri tíma. Timaritið óskar þessu nýja fjelagi góðs gengis í framtíðinni. Um kaupfjelag þetta er auðvitað lítið að segja, enn sem komið er. F*að var stofnað seint í Nóvember f. á., sem framhald af pöntunarsamtökum verkamanna s. á. Verkamenn höfðu á árinu útvegað sjer vörur fyrir rúm- ar 50 þús. kr., þar af voru kol fyrir 22 þús. kr. og hitt matvörur fyrir' nær því 30 þús. kr. Samanborið við verð hjá kaupmönnum í bænum, á samskonar vörum á sama tíma, varð hreinn ágóði af fjelagskaupunurn 7 þús. kr. og dregur fátækum fjölskyldumanni um minni hundraðs- ágóða í kaupum óhjákvæmanlegrar nauðsynjavöru. Petta hefir numið um 70 kr. á hvern fjelagsmann. Fjelagið hefir sétt sjer lög og taldi 110 fjelagsmenn 1. Febr. þ. á. Stefnan verður fyrst um sinn sú, að panta fremur fáar tegundir nauðsynjavöru, og afhenda svo vör- urnar með sem minnstum kostnaði, að eins mót borg- un út í hönd. Til varasjóðs á að leggja 2 °/o af allri inn- fluttri vöru, með áföllnum kostnaði. Stofnsjóðsframlag er ekkert. Inngangseyrir er 1 kr. sem rennur í varasjóð. Fjelagið skiptist í deildir; hefir hver deildarstjóri reiknings- hald fyrir sína deild og ábyrgist vörur deildarinnar eptir móttöku. Fjelagið er »solidariskt« í heild sinni. Oangi starfsemi þessa nýja fjelags viðunanlega, má ætla að vaxandi samvinna komizt á milli þess og hins sterka Kaupfjelags Eyfirðinga á Akureyri, enda líklegt að þess konar samvinna sje eitt af þroskaskilyrðum nýja kaupfje- lagsins. Verkamenn á Akureyri hafa samt eigi, að svo stöddu, viljað ganga beinlínis í Kaupfjelag Eyfirðinga — sem að mestu leyti er bændafjelag —, heldur kosið að prófa sína eigin krapta. Báðum megin verður samt vel að gæta þess, að eigi komi fram rígur eða kapp milli fjelaganna, því það yrði þeim báðum til skaða.

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.