Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Page 51

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Page 51
45 Eptir venju fiytur Tímaritið skýrslu um sláturfje K. Þ. Sje þessi skýrsla borin saman við eldri skýrslur, sama efnis, er mestur mismunurinn fólginn í því, hversu sláturfje fjelagsins hefir langmest fjölgað á síðasta ári. Til þess liggja ýmsar ástæður, en þó einkum þessar: útflutningur lifandi sauðfjár er hættur, fjenu hefir stöð- ugt fjölgað á fjelagssvæðinu, verðlag sláturfjárafurða var álitlegt í haust en heyfengur eptir sumarið sumstaðar með rýrara móti, og loks má telja það, að allt af hneigj- ast fleiri og fleiri að því að verzla með sláturfje sitt í fjelaginu. Aðsókn til fjelagsins með sauðfje var meiri en svo að hægt væri að veita því öllu móttöku, sem fram var boð- ið, nema þá til þess að sláturtíðin gengi of langt fram á haustið. Er nú ráðgert að kaupfjelagið auki, á þ. á., húsrúm siít til sláturfjármóttöku, að svo miklum mun, að líklegt þyki að dugi fyrst um sinn. í raun rjettri þyrfti að auka móttökuáhöldin meira en um helming, því enn sem komið er mun fjelagið eigi fá nema um helming þess sauðfjár, sem látið er burtu frá búunum. En mark- ið á að vera það, — hjer sem annarstaðar —, að fjáreig- endur hafi eindreginn fjelagsskap, milliliðalausan, með alla sauðfjársölu sína til frálags að haustinu til. Að öll- um líkindum heldur sauðfjárfjölgunin áfram, um óákveð- inn tíma, því aukin grasrækt og vaxandi heyafli, sem á- reiðanlega á sjer stað, gengur aðallega til þess, að tjölga sauðfjenu, meðan markaðsverð breytist ekki stórkostlega. Eldra sauðfje fjelagsins reyndist tæplega í meðallagi í haust til frálags, en dilkar rýrari en nokkru sinni fyr. Nokkuð fór þetta eptir misjöfnum sumarhögum. Sumir afrjettir voru mjög þurrir og illa grónir um sumarið, og einmitt á sömu lendum voru nýreistar girðingar, sem ærnar hnöppuðust við. Af þessum ástæðum urðu fram- farir lambanna minni. Pó að sauðfje væri látið með mesta móti í haust, til

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.