Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Side 56
50
p. t. Reykjavík, 27. nóvember 1915.
Herra borgarstjóri.
Enda þótt oss undirritaða skorti myndugleika til þess,
að geta með fullkomnu umboði, samið á nokkurn hátt
um það mál, sem oss langar til að rita yður um með
brjefi þessu, þá langar oss þó til að hreifa því, sem
væntanlegum lið í þeim fjelagsskap, er vjer nú viljum
skýra yður frá:
Á næsta ári eru líkindi til að komið verði á fót, sam-
bandi á milli kaupfjelaga og ef til vill annara samvinnufje-
laga hjer sunnan- og vestan lands, með líku sniði og
Samband íslenzkra samvinnufjelaga norðanlands. Ef það
lánast að sameina helztu samvinnufjelögin á nefndu
svæði, í eitt sambandsfjelag í náinni framtíð, sem góðar
horfur eru á, þá mun fyrsta áhugamál þessa fjelagsskap-
ar verða það, að koma upp sameiginlegum innkaupakont-
ór útlendrar vöru hjer í Reykjavík, ásamt vörugeymslu-
húsum í samvinnu við S. í. S. og að líkindum í sam-
bandi við núverandi ráðanaut íslenzkra samvinnufjelaga.
Er oss fyllilega Ijóst, hversu mikla þýðingu það gæti
haft fyrir þrif og gengi slíks fyrirtækis, að fá afnotarjett
húsa eða lóða á heppilegum stað hjer við höfnina, er
hún verður fullgerð. Af því vjer óttumst að sá fjelags-
skapur, sem vjer höfum stuttlega skýrt yður frá, verði
ef til vill ekki fullmyndaður, þegar Reykjavíkurbær fer að
leigja út lóðir, eða hús og lóðir við höfnina, til afnota
fyrir stórkaupaverzlanir, eða gefa fyrirheit um það, þá
leyfum vjer oss nú þegar að fara þess á leit við bæjar-
stjórn Reykjavíkur, að hún gefi væntanlegu sambands-
fjelagi kost á lóð, á sem allra heppilegustum stað. Ber-
um vjer það traust til bæjarstjórnarinnar, að hún muni
láta slíkan fjelagsskap, sem hjer ræðir um, ganga fyrir
prívatatvinnurekendum í þessu efni.
Af því vjer, að svo stöddu, höfum engan myndug-
leika til að semja um neitt í þessu efni, eins og hjer að
framan er skýrt frá, leyfum vjer oss að biðja yður, hátt-