Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Qupperneq 57
51
virti herra borgarstjóri, að leggja þetta brjef ekki fyrir
bæjarstjórnina, að svo komnu, og ekki fyr en henni fara
að berast erindi frá öðrum í þessa átt, þannig að ákvörð-
un verði tekin um lóðirnar.
Ástæðan til þess að vjér ritum yður þetta brjef nú
þegar er sú, að vjer óttumst að stærri umboðsverzlanir
og kaupmenn bæjarins muni sitja um að ná, svo fljótt
sem unnt er, haldi á hagkvæmustu lóðum við höfnina,
og þá sje áríðandi fyrir oss að láta yður vita fyrirætlun
vora í þessu efni í þvf trausti að þjer hafið oss í hyggju
á sínum tíma.
Með mikilli virðingu.
Ásgeir Ásgeirsson, Sigurður Runólfsson,
form. Kaupfjel. Hvammsfjarðar. form. Kaupfjel. Borgfirðinga
Guðmundur Guðmundsson. Helgi /ónsson.
Fleiri mál voru ekki tekin til umræðu á fundinum.
5. B. Runólfsson.
V. Bendingar.
1. Næsti aðalfuridur Sambandsins verður haldinn á
Akureyri, ef til vill nálægt vetrarlokum þ. á., eða svo
snemma að erindisreki Sambandsins geti verið á fund-
inum, áður en hann fer aptur til útlanda, eptir væntan-
lega hingaðkomu nálægt miðjum Marz þ. á. Mörg mik-
ilvæg framtíðarmál verða til umræðu á fundinum. Er
því nauðsynlegt að deildir Sambandsins láti sem flesta
fulltrúa sína mæta á fundinum. Einnig ætti vel við að
ýms samvinnufjelög, utan Sambandsins, sendu mann eða
menn á fundinn, til að kynnast málefnum og stefnu
Sambandsins, þó eigi verði þá þegar óskað eptir inn-
göngu. Fundurinn verður boðaður símleiðis í tæka tíð.