Andvari - 01.01.1984, Síða 23
ANDVARI
VILMUNDUK JÓNSSON
21
III.
Um skipulega þátttöku Islands í alþjóðasamtökum um heilbrigðismál var
vart að ræða, fyrr en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin tók til starfa, en stofnskrá
hennar var undirrituð í New York 1946. Island hefur frá upphafi verið aðili
að þessari stofnun og tekið þátt í störfum hennar. Aðildarlönd áttu m. a. að
senda upplýsingar um smitsjúkdóma mánaðarlega cg önnur heilbrigðismál ár-
lega. Aðalþing var haldið einu sinni á ári, og sótti það í tíð Vilmundar fyrir
hans hönd prófessor Júlíus Sigurjónsson, sem einnig var með í ráðum um svör
við bréfum og gerð ársskýrslna. Stofnunin hefur gefið út nokkur rit á ári hverju
um heilbrigðismál og fréttablað um smitsjúkdóma og útbreiðslu þeirra, og jafn-
an var hún reiðubúin að veita upplýsingar um sitthvað, ef óskað var. Island
a rett á að senda til náms á vegum stofnunarinnar lækna eða aðra heilbrigðis-
starfsmenn og hlýtur til þess tiltekna fjárhæð á ári. Námsfólk þetta valdi land-
læknir úr hópi umsækjenda, ef fleiri voru en að komust, og varð að fylgja
nákvæm greinargerð um fyrra nám, tilgang námsins og væntanleg verkefni i
heimalandi að námi loknu. Síðar verður getið rits Vilmundar um alþjóðasam-
vinnu um heilbrigðismál.
Að sjálfsögðu varð landlæknir að fylgjast vendilega með skipun og þróun
heilbrigðismála í grannlöndum okkar, einkum á Norðurlöndum, kynna sér
helztu lög þeirra og reglur, sem gætu orðið Islandi fyrirmynd, og þekkja heil-
hrigðisástand og heilbrigðismenningu vítt um heim. Var Vilmundur afbrigða
vel að sér í þeim efnum án þess að hafa nokkru sinni sótt fund eða ráðstefnu.
IV.
Samantekt og útgáfa rita og annarra gagna var umfangsmikill þáttur i
starfi landlæknis, og voru hinar árlegu Heilbrigðisskýrslur aðalritið, sem emb-
æ«ið sendi frá sér í tíð Vilmundar. Fyrri landlæknar höfðu gefið út fáeina
arganga af mjög stuttum skýrslum, en afar gloppótt. tJr því bætti Guðmundur
Hannesson prófessor að mestu, og Vilmundur gaf út, auk eldri skýrslna, sam-
felldar skýrslur fyrir árin 1929—1957, alls röskar 6000 bls. Þvi á svo að heita,
að til séu Heilbrigðisskýrslur frá 1881, en framan af er tölfræðilegt gildi
þeirra lítið.
Vilmundur gerði fljótlega ýmsar breytingar á skýrslunum, samdi ný
skýrsluform (eyðublöð) og spurði þar margs, sem fyrri landlæknar höfðu ekki
spurt. Varð og smám saman auðveldara um vik að afla upplýsinga, og stuðlaði
að því margt, sem liggur milli hluta hér. Vilmundur lagði mikla rækt við Heil-
hngðisskýrslurnar og varði til útgáfu þeirra ómældum tíma, fjölskyldan veitti
honum lið í þegnskylduvinnu, og prófessor Júlíus Sigurjónsson gaumgæfði tölur
°g sitthvað fleira. Að öðru leyti var hann einn um útgáfuna ásamt ritara sín-
Urn, ef honum gafst tóm frá öðrum störfum, og allar töflur ritaði hann eigin