Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Qupperneq 12

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Qupperneq 12
4 STÚDENTABLAÐ BJÖRN ÞORSTEINSSON: Síðustu ákvæði Gamla sáttmála Nokkrar hugleiSingar. að nokkru 1. des.; hins vegar hef ég reist mér þann hurðarás um öxl að birta hér nokkrar hugleiðingar um heimsfurðuskjalið Gamla sátt- mála, eða síðustu greinar þess. Heimsfurðuskjal. í Danmerkursögu Eriks Arups (Danmarks Histcrie II. b. 1932, bls. 162) segir: Gamli sátt- máli er algjörlega einstætt pólitískt skjal jafn- vel á 13. öld, sem var þó mesta þjóðfrelsisöld í stjórnmálum, allt fram til þess að franska bylt- ingin hóf upp merki hennar. I allri veraldar- sögunni er varla hægt að finna neitt annað dæmi þess, að frjáls þjóð í nauðum stödd hafi haldið svo hátt merki frelsis síns og sjálfstæðis allt til lokaákvæða samningsins um uppsagnar- skilyrði hans einmitt á því augnabliki, þegar hún áleit sig þó nauðbeygða til þess að leita stjórnmálasambands við aðra þjóð. Orðanna hljóðan í sjálfum Gamla sáttmála sýnir það bezt, að ísland var sjálfstætt, norrænt ríki og íslendingar sjálfstæð, norræn þjóð, og um alla framtíð mundi hún halda áfram að vera það“. Þessi ummæli hins fjölvísa prófessors eru ærið athyglisverð. Hann átti sæti í sambands- laganefndinni 1918 af Dana hálfu til þess að sanna sögulegan rétt þeirra til yfirráða á Is- landi. Arup reyndist svo mikill og fágætur vís- indamaður, að hann falsaði aldrei eða hagræddi staðreyndum þjóð sinni til framdráttar. Þegar honum varð íslenzk saga kunn, dáðist hann að henni og studdi oft málstað Islendinga. E. Arups hefur verið að litlu getið hér á landi enn sem komið er, og það er ekki ætlun mín að rita hér síðborin eftirmæli þess ágæta drengs og mikla fræðimanns, þótt mér finnist það vel við eigandi, að íslenzkir stúdentar minnist hans Ólík sjónarmið. Gamli sáttmáli ætti að vera Islendingum svo kunnur, að óþarft væri að eyða dýrmætu rúmi blaðs þessa í að birta hann hér í heild. Þessi sáttmáli er samningur, sem Islendingar gera við konung Norðmanna; þeir heita að gjalda honum skatt, en krefjast hins vegar margs kon- ar réttinda af konunginum, og sáttmálanum lýkur á þennan hátt: Jarlinn viljum vér yfir oss hafa, meðan hann heldur trúnað við yður, en frið við oss. Skulum vér og vorir arfar halda með yður allan trúnað, meðan þér og yðar arfar halda við oss þessa sáttargjörð, en lausir, ef hún rýfst að beztu manna yfirsýn“. Það skín hvorki auðmýkt né þrælslund út úr greinum Gamla sáttmála, heldur sjálfsvirð- ing og festa. íslendingar játuðust að vísu undir konung, ,,en þeir höfðu tekið sér hann eftir gömlum reglum ættasamfélags, er kýs sér kon- ung og getur sett hann af, ef hann rýfur þann sáttmála, sem gerður hefur verið. Konungur- inn var ekki settur yfir Island af guðs náð eins og í Noregi. Hann var viðurkenndur sem æðsti embættismaður, er hægt var að segja upp, ef hann héldi ekki trúnað við almenning. Þannig er Gamli sáttmáli mótaður af aldagömlum stjórnmálaþroska þjóðveldisins“ (Einar Ol- geirsson: „Ættasamfélag og ríkisvald bls. 274—75). Islenzka þjóðveldið, sem gerði Gamla sátt- mála, var svo sérstætt að menningu og stjórn-

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.