Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 13

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 13
STÚDENTABLAÐ 5 skipan um þessar mundir, að það hlaut að verða þyrnir í augum höfuðskörunga vestrænn- ar siðmenningar. Hér voru bændur svo óguð- legir að kunna lestur og skrift og ráða laga- setningu í landinu, en samkvæmt forskrift kirkju- og konungsvalds áttu þeir að vera óvirkir þolendur guðdómlegra stjórnarvalda. í Konungsskuggsjá, norsku riti frá því um 1260, segir, að konungur „er tignaður og miklaður á jörðu og allir lúta til hans sem til guðs“, af því að „konungurinn merkir guðlega tign, því að hann ber nafn sjálfs guðs, og situr hann í hinu hæsta dómarasæti á jörðu, og er það svo að virða sem maður tigni guð sjálfan, þá er hann tignar konung fyrir nafn þess sakar, er hann hefir af guði“ (Kon. skuggsjá, útg. Kh. 1920, bls. 185). Þessi guðlega upphafning valdsins hefur komið íslenzkum þjóðveldismönnum spánskt fyrir sjónir, því að þeir vissu ekki betur sn öll völd ættu upptök sín hjá lýðnum. Þeir játast undir erlendan einvaldskonung, en sníða völd- um hans í upphafi þröngan stakk. Islendingar þekktu vel stjórnarhætti norsku konunganna; Snorri Sturluson hafði skrifað um þá stórvirki og dregið óspart fram rangsleitni þeirra og of- beldi við bændur og höfðingja. Islenzkir höfð- ingjar vissu, að konungsvaldið var þeim hættu- legt, ef það næði að eflast. Þess vegna rísa þeir upp til varnar hagsmunum sínum með styrk alþýðu, um leið og þeir gefast upp og framselja þjóð sína erlendum valdhafa. Héðan í frá átti íslenzk alþýða og höfðingjastéttin sameiginlegra hagsmuna að gæta gegn konungsvaldinu; þess vegna verður sjálfur uppgjafai’sáttmálinn varn- ar- og sóknarskjal þjóðarinnar í viðnáms- og sjálfstæðisbaráttu. A Sturlungaöld hafði vegur alþingis farið þverrandi. Það mun hafa verið háð öll árin, en reglulegt allsherjarþing hefur það varla verið, þegar flokkadrættir voru mest- ir, og þess er getið 1238, að Gissur Þorvaldsson sendi einn manna sinna, Hjalta Magnússon, með flokk til þess að hleypa því upp. Nú hefst veg- ur þess að nýju, því að „alþingi er gert að vígi höfðingja- og bændastéttar gegn konungsvald- inu (E. 01.: Æ. 275). „Jarlinn viljum vér yfir oss hafa . . „Jarlinn viljum vér yfir oss hafa, meðan hann heldur trúnað við yður, en frið við oss“. Það er mikið sjálfsöryggi og reisn í þessum setn- ingum. „Hér er það alþýðan, bændurnir, sem hafa orðið. Það eru þeir, sem semja, ekki jarl- inn“ (E. Ol.: Æ. 277). En hvers vegna varð jarldómurinn ekki lang- lífur á Islandi? Til þess liggja margar orsakir, og ein er e. t. v. sú, að Gissur Þorvaldsson er orðinn einmana gamalmenni, þegar hér er komið, þótt hann væri ekki nema 54 ára að aldri. Öll börn hans voru dáin, og Haukdælaættin átti engan, sem gæti erft jarlstignina. Sjálfur átti Gissur ekki langt eftir ólifað, og það er óvíst, að hann hafi nokkru sinni orðið raunverulegur Islandsjarl. Hitt er annað, að jarldómurinn samrýmdist ekki vel einvaldskonungdæminu norska. Jarl var þjóðhöfðingi, eins konar vísikonungur. Norskir jarlar höfðu oft keppt um krúnuna við sjálfan konunginn, en með falli Skúla jarls 1240 var riðinn endahnútur á þá baráttu. I Hirðskrá Magnúsar lagabætis segir: „Það er hið þriðja, er vitrum mönnum finnst mest, að snotrir konungar hafa oftlega fundið óeinurð jarlanna stundum til sín, en stundum til sinna foreldra, og því er það réttast, að kon- ungur hafi í sínu valdi að sæma þann mest af sinni föðurleifð og fremja þann, sem hann finn- ur sér hollastan og sig vill mest við leggja hans boðskap að gera bæði innan lands og utan, því að hans eign og óðal er allt landið, og eigi er handselt, að bætur gefist, þó að annars sé freistað. Það er hið fjórða, sem ljósast er, að oft hefur löngum stundum engi jarl verið í Noregi, og hefur það almúganum hægast verið, þvi að sjaldan hefur réttur smælingjans við það batn- að, að margir hafi yfirboðarar verið í senn‘ (Norges gamle Love II. b., nr. 14, bls. 403). I Noregi voru dagar jarlanna taldir, en þar með er ekki sagt, að jarlsdæmi gætu ekki verið innan norska ríkisins. I Hirðskrá segir einnig: „Sá er annar háttur jarls nafns, er Noregs konungur gefur þeim mönnum, er hann skipar yfir skattlönd sín. Fyrst Orkneyjar við því skil- yrði, sem vottar sættarskrá Sverris konungs og Haralds jarls og með þeim fleirum einkamálum, sem komu í sættargerð Magnúss konungs Há- konarsonar og Magnúss jarls Gillibertssonar, þá er þeir sættust í Björgvin, þá er liðnir voru frá burðartíma vors herra Jesu Kristi M vetra cc vetra LX og VII vetrur á iiij ári ríkis Magn- úss konungs, sonar Hákonar konungs. Svo og

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.