Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Síða 18

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Síða 18
10 STÚDENTABLAÐ breyta. Það væri hægur vandi að setja jarð- ýtu á allar rústir í Skálholti og gjöra allt egg- slétt og snoturt og neflaust, svipað og gjört var við Bessastaðakirkju, en það er oss eigi leyfilegt. Eg hef rætt þessar staðsetningar, af þvi að ég hef viljað benda á þann möguleika til úr- lausnar á máli, sem tæknilega kann að verða nokkuð erfitt, og úrlausn þessi gæti orðið nokkru ódýrari í framkvæmd. Hið forna Skálholt er farið og kemur ekki aftur. Framtíðin sker úr því, hvort Skálholt hafi möguleika til þess að verða annað en af- bragðs bújörð og merk fornleif. Nú mega menn ekki skilja sem svo, að ég hafi ekki getað komið sjónarmiði mínu gagn- vart staðsetningu húsa á framfæri við rétta aðila. En það er svo, að sú nefnd, sem ég á sæti í, og fjallar einmitt um þessi mál, vill á hverjum tíma koma fram sem heill og óskiptur aðili, sem taka vill tillit til sem flestra. Því höfum vér allir fórnað einhverju, þegar íinna skyldi leiðir, sem færar þættu, og eigi hefur heldur skort á góðum ráðum annarra aðilja. Það ber einnig að líta á það að greiða verði allar framkvæmdir í Skálholti og er það al- menningur, sem það gjörir í einni eða annarri mynd. Því hefur ekki verið gjört ráð fyrir öllu fleira í Skálholti en að framan greinir. Þó skal geta þess, að sjálfsagt er að hagnýta laugarhitann, sem þar er nálægt til upphitunar o. s. frv. Stundum hefur heyrzt, að reisa ætti hand- ritahús í Skálholti. Það er fögur hugsjón, en eigi byggð á raunveruleika. Kæmu íslenzku handritin heim aftur, þá er skylt að geyma þau í Reykjavík. Því það er ekki hægt að nota handritin til fræðilegra starfa, nema með góðu og stóru bókasafni sér við hönd. Hitt væri það, að ske kynni, að það þætti rétt að koma upp geymsluhúsi fyrir safngripi, er þyrfti að flytja burtu frá Reykjavík; bækur, skjöl og muni, vegna ófriðarhættu. Nú hefur og sú skoðun komið fram, að biskup eigi að sitja í Skálholti. Og hefur sú skoðun birzt í ýmsum myndum og gerðum. Auðvitað gæti það aukið á virðingu staðarins, en æski- legast væri þó að vita, hvort úr því yrði eða ekki, því það er erfitt að reisa hús, sem reyn- ast, ef til vill, óheppileg innan mjög skamms tíma. Annars veit ég ekki, hvort þjóðkii-kjan t--------------------------------------------------------- Hjörtur Jónasson, stud. theol.: Hvöt Ungu synir, ungu dætur, allir niðjar gamla frónsins, fóstra okkar, foldin, grætur. Frelsum hana i'tr gini Ijónsins. Fram til dáða, drengir góðir, djarfir verjurn land og frelsi. Látum aldrei aðrar þjóðir okkur knýta þrældóms helsi. Metum litngii, Ijóð og listir. Lyftum merki feðra vorra. Enska vofan aldrei gislir Arahúð né höJlu Snorra. Ennþá standa fjöll við fjörðu, fönnum krýnd og stuðláhergi. Ennþá byggja Isajörðu ungir menn sem renna hvergi. Senn er nátilaust vor í vændum vaknar allt af fimbuldvala. Sjómenn róa. Sýnist bændum sældarlegt frá vík til dala. -_________________________________________. yrði nokkru bættari við að hafa 2—3 biskupa yfir sér. Höfuðið kynni að verða fullþungt. Hitt skiptir meira máli, að prestarnir nái til einstaklinganna og geti flutt þeim fagnaðarrík- an boðskap um óendanlegan kærleika og misk- un Guðs. A annan hátt getur kirkjan eigi haldizt við.

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.