Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 41

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Blaðsíða 41
STÚDENTABLAÐ 33 Beðizt undan ábyrgð Við undirritaðir, er stúdentaráð kaus í rit- nefnd Stúdentablaðs 1. desember af lista Vöku- manna, viljum taka fram eftirfarandi: Er ritnefndin tók að ræða um efni blaðsins, komu fram tvö sjónarmið. Meirihluti nefndar- innar, 4 menn, einn fulltrúi frá hverju hinna pólitísku stúdentafélaga annarra en Vöku, lagði fram tillögu til efnisskipunar. Var þar gert ráð fyrir, að blaðið skyldi aðallega ljá rúm ritsmíðum manna, er ætla mátti, að hefðu efst í huga, að Island skyldi vera opið og án varna, — kljúfa sig úr fylkingu hinna vestrænu þjóða, er nú fylkja liði til varnar menningu sinni. Við Vökumenn lögðum hins vegar til, í samræmi við tillögu, sem fram hafði komið í stúdentaráði, að blaðið yrði helgað kirkju og kristni með sérstöku tilliti til endurreisnar Skálholts. Voru í tillögu okkar taldir 9 menn, háskólastúdentar og aðrir, klerkar og leikmenn, er beðnir skyldu um greinar, þar sem ætla mátti, að þeir væru sérstaklega hæfir til að rita svo um þessi mál, að athygli og umhugsun hefði vakið. Við vorum atkvæðum bornir og tekið til að undirbúa blaðið svo sem meirihluti ritnefndar hafði lagt til. Eins og lesendur sjá, er nær allt efni blaðs- ins, það er háskólanemar rita, lagt til af stjórn- málafélögum stúdenta. Við teljum illa farið, að hið eina blað, er háskólastúdentar gefa út, beri keim af deilum stjórnmálaflokkanna. Virð- ist einsýnt, að stúdentar hafi margt fram að færa, sem frjósamara og fróðlegra má kallast. Þetta var þó stefna meirihluta ritnefndar, — tillögur okkar um meira og betra efni voru nær allar felldar, og hefur því svo farið, að blaðið er að miklu leyti helgað áróðri gegn því, er við teljum sjálfstæði, frelsi og framförum Islands til heilla. Sumt af því, sem í blaðinu er prentað, er auk þess þann veg stílað, að stúdentablaði er til einskis sóma. Af ofanrituðu er ljóst, að Stúdentablað 1. desember er ekki á þann veg, sem við hefðum kosið, og verðum við því ekki kallaðir til ábyrgðar fyrir skrif þess. Ósk okkar er sú, að enginn í ritnefndum þeim, er síðar gera úr garði hátíðablað stúdenta — né heldur nokkrir aðrir stúdentar, þurfi, svo sem nú er, að bera kinnroða fyrir blöðum þeim, er út verða gefin á fullveldisdegi Islendinga. Ingólfur Guðmundsson. Þorvaldur Lúðvíksson. Þór Vilhjálmsson. andlega frelsis væri menning og tilvera þjóð- arinnar lítils virði og fléttuð úr haldlitlu sand- reipi. íslenzkir stúdentar minnast í dag fengins fullveldis þjóðar sinnar. Fyrirrennarar þeirra stóðu jafnan í fylkingarbrjósti í sjálfstæðisbar- áttunni og háðu hana af þeim eldmóði, sem að lokum leiddi til fullnaðarsigurs. Stúdentar munu einhuga um að halda merki forfeðra hátt á loft og slá skjaldborg um þjóð- erni sitt, tungu og menningu. En jafnframt verða íslenzkir stúdentar að rífa það illgresi upp með rótum, sem sprettur af frækorni hleypidóma og ofstækis. Minningu hinna látnu foringja sjálfstæðis- baráttunnar verður ekki með öðru meiri sómi sýndur en slíkum garðyrkjustörfum. Stúdentum ber að fordæma hvers konar frels- isskerðingu, hvort sem slíkt athæfi er látið við- gangast austan tjalds eða vestan. Annað sæmir ekki þeim, sem synir menntagyðjunnar vilja kallast. Á þeim hvílir öðrum fremur sú kvöð að hafa saltarann reiðubúinn, hvenær sem sels- kollinum kann að skjóta upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.