Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 42

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Page 42
34 STUDENTABLAÐ EINAR K. LAXNESS, stud. mag.: Við erum alls megnugir af því að verk lýðshreyfingin er aflgjafinn Háskólastúdentar hafa kosið sér það ágæta hlutskipti að hafa forgöngu um að minnast fullveldisafmælis okkar Islendinga, 1. desem- ber. Fer og vel á því að menntamenn þjóðar- innar setji svip sinn á þennan hátíðisdag og túlki þá mál sitt svo sem sæmir einlægum ætt- jarðarvinum er vilja vinna landi sínu og þjóð allt er þeir megna á braut þjóðfrelsis og sjálfstæðis. Hin síðustu ár hefur stjóm- málabaráttan innan þjóðfélags- ins sett öðru fremur og í vax- andi mæli óafmáanlegt mark sitt á sjálfstæðisbaráttu þjóð- arinnar, þannig að þetta tvennt er svo samtvinnað orðið og verður ekki sundurgreint. I þeim átökum er hvarvetna fara fram hjá þjóðum er búa við borgaralegt þjóðskipulag, þ. á. m. Islandi, milli verkalýðs er hefur að leiðarljósi fræðikenn- ingu marxismans annarsveg- ar og yfirstétta er lifa á arð- ráni verkalýðsins hinsvegar, — þá hefur brugðið svo við hér á Islandi að arðránsstéttin hefur kosið sér þann ömurlega hlut að kasta sjálfstæði landsins á glæ með því að selja landsréttindi af hendi. Braut slíkra þjóðsvika hefur verið vandlega troðin af einstakri stefnufestu hátt í áraíug. Lævíslegustu brögðum hefur verið beitt, blekk- ingum þyrlað upp í því skyni að villa um fyrir íslenzku þjóðinni og gera hana hlutgenga á markaði hinnar alþjóðlegu arðránsstefnu sem stjórnað er frá Bandaríkjum Norður-Ameríku. Glötunarvegurinn var lagður með tilmælum Bandaríkjastjórnar síðla árs 1945 um herstöðv- ar til 99 ára. Þá átti hinn pólitíski flokkur verkalýðsins sæti í ríkisstjórn og undir for- ystu hans var mögulegt að knýja stétt auðborg- aranna og flokka þeirra til undanhalds með neitun við þessum óhugnanlegu tilmælum. En við könnumst vel við leiðar- steinana á brautinni sem lögð var og skyldi troðin næstu árin þrátt fyrir allt, — því að annað hlaut að vera óhugsanlegt, til þess voru hagsmunir auðhyggj- unnar of samtengdir, þar sem meira réð sjónarmið hins tíma- bundna hagnaðar er öllum framtíðarverðmætum fórnar heldur en þjónustan við ís- lenzkan málstað er fulltrúar auðstéttarinpar höfðu af hrekklausu fólki verið kjörnir til að inna af hendi. Að af- stöðnum ýmsum sjónhverfing- um er beitt var til að blinda augu manna, vaknar þjóðin fagran vordag árið 1951 við það að bandarískir herflokkar traðka íslenzka jörð. I tæplega 4 ár hefur þessi vesalings hermannalýður bandarískrar auðhyggju haft hér bækistöð, þaðan sem borizt hafa þeir sýklar er reynast munu dýrir íslenzkri menningu áður en lýkur; þar hafa íslenzkir þegnar verið svívirtir, mann- dómi æskumanna spillt, saurguð íslenzk þjóð- arsál. Herinn hefur greitt atvinnuvegum okk- ar rothögg með því að ginna í hópum til sín Islendinga í vinnu við að byggja upp hernaðar- hreiðrið. Meðan atvinnuleysi hefur ríkt í bæj- um og kauptúnum og við höfum horft á íslenzka Einar K. Laxness.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.