Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Síða 43

Stúdentablaðið - 01.12.1954, Síða 43
STÚDENTABLAÐ 35 þegna flýja víðsvegar úr byggðum landsins suð- ur á herstöðina, verkamenn frá skóflu, sjómenn frá fiski, bændur frá búi, — hefur hugur ríkis- stjórnarflokkanna beggja aðeins snúizt um það á hvern hátt þeir geti bezt jafnað sín í milli stundargróða hernámsins. Svo óhugnanlegur er þessi leikur. Hvort þeim er skynja hættuna tekst að af- stýra algerri glötun íslenzkra verðmæta mun ráðast nú þegar í mjög náinni framtíð. Hér sem annarsstaðar er það hin sósíalistíska verklýðs- hreyfing er mun vísa leiðina og marka stefn- una, — annað mun óhugsandi. Stétt hins vinn- andi manns mun ein geta leyst sig undan oki alþjóðlegrar, hnignandi arðránstéttar og skap- að sér þau skilyrði er nauðsynleg mega teljast til þess að alþýðan geti lifað ein, frjáls og óháð í sínu eigin landi, sjálfstæðu íslandi. Lið sitt til þeirrar baráttu geta allir lagt er skilja sögu- lega þróun og meta að verðleikum forystulilut- verk verkalýðsins í frelsisbaráttu mannkyns- ins. Verkalýður Islands mun verða sá aflgjafi er einn megnar að reka innrásarher Banda- ríkja Norður-Ameríku á brott fyrir fullt og allt. í upphafi ásælni Bandaríkjanna í garð ís- lenzkrar þjóðar risu margir upp til andmæla, — þar skipuðu stúdentar veglegan sess, svo og háskólakennarar. Þá er forsvarsmenn auð- hyggjunnar hertu kverkatök sín með hótun- um, blekkingum, svikum í skjóli valdsins, viku margir af verðinum um sjálfstæði þjóðarinnar er hátt höfðu galað, en skorti síðan þrek og einlægan vilja til að standa gegn ofurþunga peningavaldsins. Sífelldar viðvaranir frá Sósíal- istaflokknum og öðrum róttækum samtökum, þar sem bent hefur verið á með aragrúa raka að hcrinn muni einungis hafa í för með sér tortímingu alls sem íslenzkt er, þar sem hann veitir okkur enga vörn í styrjöld, heldur kall- ar hættuna heim, hafa megnað að ljúka upp augum skilningssljórra manna er sváfu værum svefni, þá er mest syrti að sjálfstæði íslands. Betra er seint en aldrei. Innan Háskólans hef- ur Félag róttækra stúdenta eitt stúdentasam- taka barizt á sama grundvelli er markaður var 1945 gegn herstöðvum á Islandi, og voru einu stúdentasamtökin er mótmæltu hernáminu 1951 og ásamt verklýðshreyfingunni og flokki hennar, Sósíalistaflokknum, vöruðu við afleið- ingunum sem nú eru að koma á daginn. En þrátt fyrir þungan róður hefur róttækum stú- dentum lánast að efla svo hinn íslenzka mál- stað meðal háskólastúdenta að nú má líta sam- einingu vinstri sinnaðra stúdenta á grundvelli kröfunnar um tafarlausa uppsögn hernáms- samningsins og brottför herliðsins. I samræmi við það höfum við stúdentar talið sjálfsagt að 1. desember verði umfram allt helgaður þessari kröfu. Grundvallarsjónarmið okkar róttækra stúd- enta, en í nafni þeirra rita ég hér, verða ein- ungis skýrð út frá skilningi á baráttu hinna andstæðu þjóðfélagsskipana er nú heyja hild- arleik sinn, — deyjandi skipulags auðhyggju og arðráns, skipulags borgarastéttar sem nú er að líða undir lok og skipulags vei'klýðshyggju, sameignar og bræðralags er hvílir á fræðikenn- ingu marxismans, sem taka mun við. Þessi þjóðfélagsform geta verið við lýði bæði tvö á friðsamlegan hátt unz yfir lýkur og annað tek- ur við af hinu. Þá staðreynd getur vald auð- hyggjunnar ekki umborið en reynir til hins ýtrasta meðan kraftur þess er ekki útþorrinn að lengja dauðastríð sitt með því að beita pen- ingavaldinu óspart, kaupa heilar þjóðir og tengja net herstöðva utan um hinn sósíalistiska heim. En hversu mörg peð sem heimsauðvaldið reynir að kaupa á skákborð sitt, þá verður hjóli þróunarinnar ekki snúið við. Það er skoðun okkar að með tilkomu öfl- ugustu múgmorðsvopna sé ekki um neina vernd að ræða ef styrjöld skellur á, en að hernaðarvirki geri Island aðeins að eftirsókn- arverðu skotmarki í styrjöld og orsaki tortím- ingu þjóðarinnar. Það er skoðun okkar að spill- ingaráhrifin frá hernum séu skaðleg íslenzkum æskulýð. Það er skoðun okkar að framtíð at- vinnuveganna sé í bráðum voða ef svo stefnir sem nú horfir að herstöðin sogi til sín íslenzkt vinnuafl og fólk flýi unnvörpum úr byggðum landsins til að vinna að hervirkjagerð. Það er skoðun okkar að flokkar auðkýfinga og yfir- stétta er við völd sitja í Bandaríkjunum og V.-Evrópu stjórnist fyrst og fremst af annar- legum hagsmunasjónarmiðum er fari í bága við framfarabaráttu hins vinnandi manns, og því séu það hreinar firrur er þessar auðstéttir gefi sér nafnbótina „frjálsar þjóðir“ og verj- endur lýðræðis og mannréttinda. Á ferli borg- arastéttarinnar er brennimark auðhyggju og nýlendukúgunar of skýrt markað til þess að

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.